Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 31

Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 31
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 D F C Svik Lilja Sigurðardóttir Lesari: Lilja Sigurðardóttir Úrsúla fær óvænt boð um að setjast í ríkisstjórn og grípur tækifærið, grunlaus um hvað bíður hennar. Fjöl- miðlar vaka yfir hverju fótmáli nýja ráðherrans en aðrir fylgjast líka með henni á laun, ekki allir vinveittir. Svik er fjörug og hörkuspennandi saga um völd og valda- leysi, ofbeldi og þöggun, eftir verðlaunahöfundinn vin- sæla, Lilju Sigurðardóttur. 390 bls. / H 9:00 klst. Forlagið – JPV útgáfa D Svikarinn Lilja Magnúsdóttir Það gefst sjaldan vel að það séu þrír í hjónabandi og þegar það eru orðnir fjórir hlýtur eitthvað að springa. Sprengingin verður þegar ung kona verður viðskila við ástmann sinn og hefur enga hugmynd um afdrif hans. Þau höfðu lengi leikið tveim skjöldum og talið sér trú um að það væri í lagi. 256 bls. Bókaútgáfan Sæmundur C Sögur Snjólaugar Snjólaug Bragadóttir Hinar dásamlegu bækur Snjólaugar Bragadóttur sem hafa verið ófáanlegar á Íslandi um tíma eru nú loksins aftur aðgengilegar, að þessu sinni sem hljóðbækur. Bækur eins og Ráðskona óskast í sveit, Allir eru ógiftir í verinu, Holdið er torvelt að temja, Enginn veit hver ann- ars konu hlýtur og margar fleiri. Kynntu þér allt úrvalið á Storytel.is / H Storytel D C Hljóðbók frá Storytel Sölvasaga Daníelssonar Arnar Már Arngrímsson Sölvasaga unglings fékk Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs 2016. En hvað varð svo um Sölva? Hann er á góðri leið með að verða starfsmaður aldarinnar í Bónus. Jafnaldrar hans raða saman flugferðum í heimsreisum. Hann raðar saman orðum. En orðin láta ekki að stjórn. Þetta er saga af útlaga í leit að bandamönnum, þjóð í leit að betri tilboðum og tungumáli sem fæst á 100-kall í Hertex. Bókin fæst einnig sem hljóðbók. Lesari Árni Beinteinn Árnason. 264 bls. / H Sögur útgáfa G The darkness surrounds me Hugleikur Dagsson Englar, jólasveinar og ævintýrapersónur í einni súpu. Smekklaust grín og grátt gaman en nú í fögrum litum – skrautlegra en nokkru sinni fyrr. 104 bls. Forlagið – Ókeibæ D F Sextíu kíló af sólskini Hallgrímur Helgason Drengur sem bjargast fyrir kraftaverk hlýtur að eiga sér framtíð – en hvers konar framtíð getur það orðið, í norðlenskum firði á torföld? Sagan af Eilífi bónda, Gesti syni hans og fólkinu á Segulfirði er breið og áhrifa- mikil frásögn af því þegar nútíminn nam land á Íslandi og öreigarnir eygðu loksins von. Snilldarlega skrifuð söguleg skáldsaga, full af hlýju, húmor og harmi. 461 bls. Forlagið – JPV útgáfa D Sorgarmarsinn Gyrðir Elíasson Gyrðir Elíasson leggur hér lokahönd á sagnaþrí- leik sem hófst með Sandárbókinni og var síðan fram haldið í Suðurglugganum, en báðar fjölluðu þær með áleitnum hætti um líf og störf listamanna, önnur um málara en hin um rithöfund. Sorgarmarsinn segir af textasmiðnum Jónasi sem hallar sér þó aðallega að tónlistinni og hefur fundið sér athvarf í litlu þorpi á Austfjörðum. Táknræn og hrífandi frásögn af sköpun, orðleysi og einskonar pattstöðu í flóknu samspili lífs og listar. 164 bls. Dimma D F C Stormfuglar Einar Kárason Lesari: Einar Kárason Íslenskur togari er á veiðum úti á reginhafi um miðjan vetur þegar aftakaveður brestur á. Gríðarleg ísing hleðst á skipið og áhöfnin verður að berja klakann í nístandi frosti og stórsjó. Baráttan er upp á líf og dauða: í tal- stöðinni glymja neyðarköll annarra skipa. Spennu- þrungin átakasaga byggð á sönnum atburðum eftir sagnameistarann Einar Kárason. ★★★★★ ÁBS / DV 124 bls. / H 2:38 klst. Forlagið – Mál og menning D F C Stúlkan hjá brúnni Arnaldur Indriðason Lesari: Stefán Hallur Stefánsson Ung kona sem hefur verið í neyslu er týnd og fjöl- skylda hennar biður Konráð lögreglumann að leita að henni. Hann er þó mest með hugann við löngu liðna atburði og skyndilega fangar lítil stúlka sem drukknaði í Reykjavíkurtjörn athygli hans. Snjöll og nístandi saga um brostnar vonir og börn sem eiga sér hvergi skjól, snilldarlega fléttuð af meistara Arnaldi. 300 bls. / H 9:10 klst. Forlagið – Vaka-Helgafell C Svartfugl Gunnar Gunnarsson Lesari: Gunnar Gunnarsson Svartfugl er magnað skáldverk og af mörgum talin albesta bók Gunnars Gunnarssonar. Bakgrunnurinn er Sjöundármorðin, en jafnframt er dregin upp skörp mynd af íslensku samfélagi um aldamótin 1800, stétt- skiptingu og harðneskjulegum aðstæðum alþýðunnar. Svartfugl segir mikla sögu af mögnuðu fólki. Klassískt verk sem talar til nýrra tíma á nýjan hátt. H 9:11 klst. Hljóðbók.is 31 Skáldverk ÍSLENSK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.