Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 32
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
E
Valdamiklir menn
Þriðja morðið
Jón Pálsson
Þórhallur rannsóknarlögreglumaður glímir við eitt
flóknasta glæpamál sem komið hefur á hans borð. Hann
er að komast á sporið en sogast þá inn í hringiðu spill-
ingar og yfirhylmingar þar sem hættur liggja við hvert
fótmál. Nú þarf hann að gera upp við sig hvort hann
fylgir þeirri línu sem lögreglan kynnir opinberlega eða
freistar þess að koma lögum yfir glæpamennina.
Þriðja morðið eftir Jón Pálsson er þriðja og síðasta
bókin í þríleiknum um Valdamikla menn.
470 bls.
Höfundaútgáfan
D
Vættir
Alexander Dan Vilhjálmsson
Sagan gerist í torkennilegri Reykjavík; vættir birtast
á hverju húshorni, þökum og upp úr holræsum. Tré
vex á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar,
hnífum rignir niður af himnum. Hvernig bregst
mannshugurinn við? Alexander Dan hefur áður sent frá
sér furðusögur sem væntanlegar eru í enskri þýðingu.
Þetta er hefðbundin skáldsaga með töfrum og furðum.
208 bls.
Benedikt bókaútgáfa
C
Það sem dvelur í þögninni
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
Ættarskáldsaga Ástu Kristrúnar byggir á sögum átta
kvenna, allt frá öndverðri 18. öld fram á hina tuttug-
ustu. Bókin hefur vakið marga til umhugsunar um
formæður sínar og –feður, á ögurtímum í sögu Íslands.
Höfundur fékk og fær enn sterk viðbrögð og jákvæð frá
fjölmörgum lesendum. Valgeir Guðjónsson flytur lög
sín við kvæði í bókinni. Sjá https://www.bakkastofa.
com/umsagnir-lesenda
Höfundur les.
H 9:00 klst.
Studiamus
D F
Þorpið
Ragnar Jónasson
Una, ungur kennari úr Reykjavík, ræður sig til starfa
á Skálum á Langanesi árið 1985. Íbúarnir eru tíu og
nemendurnir aðeins tveir. Samfélagið er lokað og tekur
henni með miklum fyrirvara. Óútskýrð dauðsföll vekja
ugg og á nóttunni finnst Unu stundum eins og hún sé
ekki ein í herberginu sínu ...
318 bls.
Veröld
E
Þorpið sem svaf
Smásögur
Reynir Traustason
Þorpið sem svaf gerist í litlu byggðarlagi. Sögur af
fólki og örlögum þess. Kvótinn er seldur og vinnan fer.
Kóngarnir geyma auð sinn í aflandinu. Eftir situr fólk
í sárum. Þetta eru sögur af svindli ekki síður en ást og
kærleika. Fossarnir eru þurkkaðir upp. Heiðinni sökkt
til að framleiða rafmagn fyrir stóriðju. Peningamenn
græða á meðan náttúran grætur. Allt selt og hrein-
leikinn horfinn. Þeir sem sjá sjálfa sig í sögunum gera
það á eigin ábyrgð. Sögurnar eru blanda af skáldskap og
raunveruleika.
192 bls.
Útgáfufélagið Stundin
F C
Tinder-match
Hörður Andri Steingrímsson
Lesari: Sindri Freyr Steinsson
Hann finnur hana á stefnumótaforritinu. Þau eru
match. Svo byrja þau að tala saman. Djarft. En vill hann
hitta hana? Er hún of ung fyrir hann? Og ætlar hún
aldrei að ná úr sér þessari pest sem hún talar enda-
laust um? Tinder-match er spennandi nóvella úr sam-
tímanum um netsamtal sem vindur upp á sig; ástina,
gredduna og einmanaleikann. Hörður Andri Stein-
grímsson hefur gefið út tvær ljóðabækur og birt smá-
sögu í tímaritinu Stínu.
H 2:39 klst.
Forlagið
D
Undir hrauni
Finnbogi Hermannsson
Spennandi frásögn sem byggir á raunverulegum
atburðum þegar tveir þýskir skipbrotsmenn flúðu
undan breska hernum upp í Hekluhraun og unnu þar
í púlsvinnu fyrir Selsundsbónda. Í Reykjavík beið ung
stórættuð stúlka sem áræddi að lokum að heimsækja
unnustann upp í hraunið. Meistaralega fléttað saman af
landskunnum sagnaþul.
128 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
F C
Undir yfirborðinu
Tanja Rasmussen
Lesari: Silja Aðalsteinsdóttir
Lena er laus úr ofbeldissambandi, en aðeins að nafn-
inu til. Í huganum og í draumum sínum er hún ennþá
föst og hefur verið brotin niður svo rækilega að hún
getur ekki risið upp. Ekki fyrr en hún hleypir Övu inn
í líf sitt, Övu sem brosir til allra og ansar engum mót-
bárum. Undir yfirborðinu er grípandi nóvella eftir
Tönju Rasmussen, tvítugan háskólanema og stofnanda
bókaútgáfunnar Kallíópu.
H 2:05 klst.
Forlagið
D
Ungfrú Ísland
Auður Ava Ólafsdóttir
Sögusviðið er Reykjavík árið 1963. Ung skáldkona flytur
vestan úr Dölum með nokkur handrit í fórum sínum,
á tímum þegar karlmenn fæddust skáld en ungum
konum var boðið að taka þátt í fegurðarsamkeppni
Fegrunarfélags Reykjavíkur.
Þetta er saga um sköpunarþrá og leitina að fegurð.
Auður Ava hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
síðustu skáldsögu sína, Ör.
240 bls.
Benedikt bókaútgáfa
D F
Útlagamorðin
Ármann Jakobsson
Ungur maður finnst látinn í litlum bæ úti á landi. Lög-
reglan fer á staðinn en bærinn er fullur af erlendum
ferðamönnum, kattamorðingi gengur laus, tvær systur
virðast ráða öllu og ein úr lögregluliðinu á þaðan miður
góðar minningar.
Launfyndin og hörkuspennandi glæpasaga.
328 bls.
Bjartur
32
Skáldverk ÍSLENSK