Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 34

Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 34
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 E Etýður í snjó Yoko Tawada Þýð.: Elísa Björg Þorsteinsdóttir Þrjár kynslóðir ísbjarna segja sögu sína með eigin orðum. Heillandi saga um samband manna og dýra, um útlegð, fjölskyldur, aðskilnað og það að vera öðruvísi eftir japanska rithöfundinn Yoko Tawada sem er búsett í Þýskalandi. 322 bls. Angústúra D Evgenía Grandet Honoré de Balzac Þýð.: Sigurjón Björnsson Með þessari skáldsögu hófst sigurför Balzacs sem skáldsagnahöfundar en þessi dramatíska saga er löngu orðin klassísk og hefur verið þýdd á fjölda tungumála. Hún kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku. 204 bls. Skrudda E F Ég er að spá í að slútta þessu Iain Reid Þýð.: Árni Óskarsson Jake og kærasta hans heimsækja foreldra hans sem búa á frekar afskekktum bóndabæ. Spennuþrungin og taugatrekkjandi saga um ökuferð sem endar með skelf- ingu. Bókin hefur slegið rækilega í gegn víða um heim og leikstjórinn Charlie Kaufman vinnur nú að stórmynd eftir sögunni. 218 bls. Veröld G Fjörður hinna dauðu Hans Jakob Helms Þýð.: Eiríkur Brynjólfsson Langt er um liðið frá því síðan upplýst var að Banda- ríkjaher flaug flugvélum hlöðnum kjarnorkusprengjum til herstöðvarinnar í Thule. En getum við verið viss um að málinu hafi lokið þar með? 312 bls. Draumsýn E F Fléttan Laetitia Colombani Þýð.: Ólöf Pétursdóttir Þrjár konur, þrjú líf, þrjár heimsálfur. Þessar konur eiga það sameiginlegt að neita að gefast upp fyrir örlögum sínum og andstreymi. Þær ákveða að berjast fyrir sínu og svo fer að þræðir þeirra fléttast saman. 224 bls. Forlagið – JPV útgáfa F I Bókmennta- og kartöflubökufélagið Mary Ann Shiffer og Annie Barrows Þýð.: Ingunn Ásdísardóttir Skáldkona kynnist ást og sorgum á Guernsey undir þýsku hernámi, og vináttu sem er engri lík. Bókmennta- og kartöflubökufélagið hefur farið sigur- för um heiminn. „Bestu meðmæli fyrir þá sem hafa gaman af hlýlegum ástarorðum, krydduðum með smá sorg og trega.“ Mbl. 326 bls. Bjartur E F Dag einn í desember Josie Silver Þýð.: Herdís Hübner Þegar Laurie situr í strætó á köldum desemberdegi kemur hún auga á hann – hinn eina rétta – og svo ekur vagninn af stað. Þegar hún sér hann næst er hann kærasti vinkonu hennar. Laurie reynir að láta lífið halda áfram og í tíu ár skarast leiðir þeirra. Skemmtileg, hjartnæm og grípandi ástarsaga um örlög sem tvinnast saman og flækjast á ýmsa vegu. 470 bls. Forlagið – JPV útgáfa E Dagar höfnunar Elena Ferrante Þýð.: Halla Kjartansdóttir Dagar höfnunar er að margra mati magnaðasta bók ítalska höfundarins Elenu Ferrante. Lýsingar hennar á sálarlífi og félagslegri stöðu konu á barmi örvæntingar eru sterkar, átakanlegar og stundum grátbroslegar. Bókaklúbburinn Sólin gefur út vandaðar þýðingar á eftirtektarverðum bókum heimsins. 191 bls. Benedikt bókaútgáfa E F Dóra Bruder Patrick Modiano Þýð.: Sigurður Pálsson Patrick Modiano hlaut Nóbelsverðlaunin 2014. Þessi skáldsaga tengist honum persónulega því viðfangsefnið, týnda stúlkan Dóra Bruder, kallar fram minningar frá liðnum tíma. Þetta ferðalag er í senn undursamlegt og skelfilegt. 163 bls. Forlagið – JPV útgáfa E F Englar Hammúrabís Max Seeck Þýð.: Sigurður Karlsson Starfsmaður finnska sendiráðsins í Zagreb hverfur í kjölfar hótana. Daniel Kuisma og Annika Lehto eru send til að grafast fyrir um afdrif landa síns. Brátt finna þau þræði sem liggja inn í hrylling Balkanstríðsins. Hvað gerðist raunverulega fyrir tuttugu árum? Hverjir eru Englar Hammúrabís og hver vill þá feiga? 456 bls. Forlagið – JPV útgáfa 34 Skáldverk ÞÝDD
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.