Bókatíðindi - 01.12.2018, Qupperneq 35

Bókatíðindi - 01.12.2018, Qupperneq 35
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 E Gilead Marilynne Robinson Þýð.: Karl Sigurbjörnsson Gamall prestur í bænum Gilead í Iowa í Bandaríkjunum veit að hann á skammt eftir ólifað. Hann skrifar ungum syni sínum bréf til að miðla reynslu sinni og sögu fjöl- skyldu sinnar og bæjarins. Áhrifarík innsýn í umbrota- tíma og átök og glímu fólks við lífið og dauðann, mann- lega reisn, breyskleika og dýpstu rök tilverunnar. Margverðlaunað meistaraverk eftir einn virtasta skáldsagnahöfund Bandaríkjanna. 302 bls. Ugla E F I Guð hins smáa Arundhati Roy Þýð.: Ólöf Eldjárn Þessi stórbrotna, hlýja og seiðandi verðlaunaskáldsaga frá Indlandi kom fyrst út fyrir rúmum tuttugu árum og snerti hugi og hjörtu lesenda víða um heim – einnig hér á landi, en hún kom út í íslenskri þýðingu árið 1998. Bókin er nú endurútgefin í tilefni þess að höfundurinn hefur loks sent frá sér aðra skáldsögu sem nefnist Ráðu- neyti æðstu hamingju. 336 bls. Forlagið – Mál og menning E Gulllykillinn George MacDonald Huldulandsskógur er rétt við garðinn hans Mosa. Dag einn sér hann nokkuð stórfenglegt, regnboga, sem kallar hann til sín og hefst þá ferðalag sem á eftir að endast honum ævina. Hann kynnist Flækju og saman halda þau æ lengra inn á við í leit að landinu þaðan sem skuggarnir falla. 80 bls. Rót Forlag G Hawkline-skrímslið - gotneskur vestri Richard Brautigan Þýð.: Þórður Sævar Jónsson Richard Brautigan (1935–1984) var á meðal þekktustu rithöfunda Bandaríkjanna á sinni tíð. Hann samdi 10 skáldsögur og gaf út 9 ljóðasöfn og eitt smásagnasafn á ferli sínum. Hawkline-skrímslið var sú fimmta sem hann sendi frá sér og er á margan hátt einstök í höfundar- verkinu þar sem hún er skopstæling á hinni vinsælu bókmenntagrein vestranum. 182 bls. Dimma G Hefnd grasflatarinnar Sögur 1962–1970 Richard Brautigan Þýð.: Þórður Sævar Jónsson Í 62 örsögum bregður höfundur upp hverfulum svip- myndum af furðulegum raunveruleika. Textinn er í senn ljóðrænn, fjarstæðukenndur, frumlegur, harm- rænn og ómótstæðilega fyndinn. Fá skáld standa Brau- tigan snúning hvað myndvísi og myndlíkingar varðar, en hann sá póesíu og fegurð á stöðum sem fæstir veita nokkra eftirtekt. 208 bls. Partus forlag E F Flúraða konan Mads Peder Nordbo Þýð.: Ingunn Snædal Lík af fornum víkingi finnst í Grænlandsjökli en skömmu síðar hverfur líkið og lögreglumaður finnst myrtur. Morðið virðist tengjast óleystum morðmálum frá árinu 1973. Blaðamaður fer að rannsaka málið með aðstoð ungrar konu sem var að losna úr fangelsi fyrir að hafa myrt föður sinn. 357 bls. Veröld E Forargata Reykjavík Sólveig Eggerz Þýð.: Elín Guðmundsdóttir Forargata Reykjavík er áhugaverð frásögn um þroska- sögu stúlku sem fæðist í sveit þar sem skýr mörk eru milli efnaðra og fátækra. Stúlkan flýr úr sveitinni eftir átök við bóndasoninn og sér höfuðstaðinn í hillingum. Þar verði lífið annað og léttara og auðvelt að framfleyta sér. Annað kemur upp á daginn en stúlkunni tekst með einbeitni og dugnaði að finna sér samastað í tilverunni. Hernámið setur mikinn svip á söguna og lífinu í Reykjavík er vel lýst og þeim áhrifum sem það hefur á ákvarðanir Siggu. -Guðrún Kvaran, prófessor. 280 bls. Tindur E F Fórnarmýrin Susanne Jansson Þýð.: Erna G. Árnadóttir Nathalie Ström snýr aftur á bernskuslóðir til að vinna að doktorsritgerð um mýrlendi. Líkfundur gefur henni – og lögreglunni tilefni til þess að rifja upp fortíðina. „Hrollvekjandi glæsileg frumraun.“ Paula Hawkins (Konan í lestinni) 301 bls. Bjartur E F Fyrir fallið Noah Hawley Þýð.: Ísak Harðarson Í sumarþoku síðla kvölds hrapar einkaþota á leið til New York með 11 manns innanborðs. Þeir einu sem komast af eru 4 ára drengur, erfingi ótrúlegra auðæfa, og listmálari. Var þetta slys eða voru einhver myrkraöfl að verki? Mögnuð spennusaga eftir Noah Hawley, höf- und sjónvarpsþáttaraðarinnar Fargo. 464 bls. Forlagið – JPV útgáfa D Galdra-Manga Dóttir þess brennda Tapio Koivukari Þýð.: Sigurður Karlsson Manga, heimasæta í Árneshreppi á Ströndum, flýr heimasveit sína eftir að faðir hennar er brenndur fyrir galdra. Sagan lýsir tildrögum galdramálsins og baráttu Möngu við yfirvöld og byggir á raunverulegum atburðum á 17. öld. Þjóðsagnapersónan Galdra-Manga fær hér uppreisn æru í stórfenglegu skáldverki eftir hinn margverðlaunaða finnska höfund. 304 bls. Bókaútgáfan Sæmundur 35 Skáldverk ÞÝDD
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Bókatíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.