Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 37

Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 37
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 E Lífsspeki kúa Rosamund Young Þýð.: Bjarni Jónsson Ást er allt sem þarf. Rosamund þekkir hverja einustu skepnu á bænum með nafni, kann ættartölur þeirra utanbókar og elskar þær allar út af lífinu. Öllu stressi og álagi er bægt frá þessum stórbrotnu dýrum eins og framast er unnt. Og það er einföld staðreynd að kýr elska hver aðra og við getum margt lært af blessuðum beljunum. Bókaklúbburinn Sólin gefur út vandaðar þýðingar á eftirtektarverðum bókum heimsins. 143 bls. Benedikt bókaútgáfa E F Líkblómið Anne Mette Hancock Þýð.: Nanna B. Þórsdóttir Æsispennandi saga um réttlæti, hefnd og fyrirgefningu. Allt er í uppnámi hjá blaðamanninum Heloise Kaldan – í vinnunni og einkalífinu. Einmitt þá taka henni að berast bréf frá Önnu Kiel, sem er eftirlýst fyrir morð á ungum lögfræðingi. Svo er framið annað morð. Eru morðingjarnir tveir? Af hverju tengjast málin Heloise – og er líf hennar sjálfrar í hættu? 329 bls. Forlagið – JPV útgáfa E F Lukkuriddarinn Jan-Erik Fjell Þýð.: Atli Steinn Guðmundsson Bifvélavirki finnur bein úr mannshendi í undirvagn- inum á gömlum Cadillac. Rannsóknarlögreglan sendir Anton Brekke til Fredrikstad til að rannsaka manndráp þar sem miðaldra kona er fórnarlambið. 442 bls. Björt bókaútgáfa – Bókabeitan E F Krítarmaðurinn C. J. Tudor Þýð.: Ingunn Snædal Þegar Eddie var tólf ára komu vinirnir leynilegum skila- boðum hver til annars með krítarteikningum – allt þar til f ígúrurnar leiddu þá að líki ungrar stúlku. C.J. Tudor sló í gegn með þessum magnaða sálfræði- trylli. „Stórkostleg frumraun hjá ótrúlega hæfileika- ríkum höfundi.“ Sunday Mirror 316 bls. Bjartur E F Krókaleiðir hamingjunnar P.Z. Reizin Þýð.: Herdís Magnea Hübner Hér er glettin og skemmtileg samtímasaga um Jen sem vinnur við að þjálfa gervigreind. Gervigreindin tekur sér það bessaleyfi að skreppa út á veraldarvefinn og skoða sig um. Hún ákveður að hressa upp á ástarlíf Jen og kynnist þar öðrum gervigreindum sem hafa sloppið út á veraldarvefinn en eru ekki allar jafnvelviljaðar mann- fólkinu. 386 bls. Björt bókaútgáfa – Bókabeitan E C Hljóðbók frá Hljóðbók.is Köld slóð Emelie Schepp Þýð.: Kristján H. Kristjánsson Lesari: Kristján Franklín Magnús leikari Á köldu desemberkvöldi staðnæmist hraðlestin frá Kaupmannahöfn til Stokkhólms á aðallestarstöðinni í Norrköping. Ung kona finnst látin um borð og reynist hún vera með eiturlyf innvortis. Ferðafélagi hennar, önnur ung stúlka, er horfin sporlaust út í myrkrið. Jana Berzelius saksóknari fær málið til rannsóknar og fyrr en varir flækist hún í atburðarás þar sem skuggaleg leyndarmál fortíðar hennar minna á sig. 396 bls. / H 9:32 klst. mth útgáfa E Lífið heldur áfram Winnie M Li Þýð.: Herdís Hübner Áhrifamikil og spennandi saga, byggð á reynslu ungrar konu sem 15 ára unglingur nauðgaði í Vestur-Belfast á Norður-Írlandi árið 2008. Glæpurinn var framinn á vor- degi þegar hún var í gönguferð. Höfundurinn, Winnie Li, skrifar söguna út frá reynslu sinni, en einnig frá sjónarhóli Johnnys, gerandans. Bókin er því í raun saga þeirra beggja og því að hluta skáldsaga. 394 bls. Almenna bókafélagið E F Lífsnautnin frjóa Anne B. Ragde Þýð.: Silja Aðalsteinsdóttir Fimmta sagan í hinum geysivinsæla bókaflokki um Neshov-fjölskylduna. Torunn starfar með Margido á útfararstofunni og gerir upp gamla húsið á Neshov. Og í Danmörku eru Erlend og Krumme líka að gera upp hús fyrir sig, börnin þrjú og barnsmæðurnar. Og á elliheimilinu situr Tormod með leyndarmál sín ... Kærkomin bók fyrir alla aðdáendur Ragde. 325 bls. Forlagið – Mál og menning 37 Skáldverk ÞÝDD
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.