Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 45
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Tregahandbókin
Magnús Sigurðsson
Hér ægir saman frumsömdum ljóðum og prósum, laun-
fyndnum hugrenningum og lánstextum sem mynda
frumlega og yfirgripsmikla heild. Í 250 liðum er vörðuð
hin villugjarna leið um tregaslóðir hugans.
104 bls.
Dimma
G
Tveir leikþættir
Ragnar Helgi Ólafsson
Efni: Sjá titil.
78 bls.
Tunglið forlag
G
Vammfirring
Þórarinn Eldjárn
Bók sem geymir fjölbreytt ljóð, bundin og óbundin,
stökur, prósaljóð og sögukvæði. Hér er ort um rætur og
vængi, dali og sólir, eftirminnilegan varning og íslenska
fyndni, en líka endurminningar og söknuð. Þórarinn
Eldjárn hefur á löngum ferli sent frá sér fjölda vinsælla
ljóðabóka fyrir börn og fullorðna og hefur alla tíð verið í
hópi okkar bestu skálda.
80 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
G
Vetrarland
Valdimar Tómasson
Valdimar Tómasson hefur áður sent frá sér nokkrar
ljóðabækur sem hafa hlotið góðar viðtökur og ratað
til lesenda. Hér yrkir hann fáguð ljóð um draumkennt
vetrarmyrkur og hyldýpi næturinnar.
28 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
G F
Skepnur eru vitlausar í þetta
Eyþór Árnason
Eyþór Árnason hefur vakið mikla athygli og hlotið verð-
laun fyrir ljóðabækur sínar. Hér kemur hann víða við;
hann fer til útlanda, setur ýmsar sögulegar hljómplötur
á fóninn og glímir við óvissuna. En alltaf er þó sveitin
skammt undan.
94 bls.
Veröld
G
Skuggaveiði
Sindri Freysson
Í Skuggaveiði er okkur boðið að heimsækja fagran dal
þar sem skínandi áin rennur um kjarri vaxið hraun og
norðurljós eru bara ljós. Þarna er náttúra okkar og land
í samhengi hins stóra hnattar en um leið í samhengi
hins skrýtna, skondna og hversdagslega, með undir-
öldu lúmskrar ógnar og sterkrar ástar. Bók um hjartað í
landinu og landið í hjartanu.
75 bls.
Sögur útgáfa
G
Ský til að gleyma
Arngunnur Árnadóttir
Ský til að gleyma er önnur ljóðabók Arngunnar Árna-
dóttur, sem starfar sem fyrsti klarínettuleikari Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands. Arngunnur hefur áður sent frá
sér ljóðabókina Unglingar (2013) og skáldsöguna Að
heiman (2016), sem hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar
íslenskra bókmennta.
52 bls.
Partus forlag
G F
Smáa letrið
Linda Vilhjálmsdóttir
Sjöunda ljóðabók Lindu Vilhjálmsdóttur, kynngi-
mögnuð og full af hárbeittum, sjóðandi femínískum
byltingarljóðum sem eru hrein og bein, meitluð og
leiftrandi kímin á köflum, en áhrifamáttur þeirra felst
ekki síst í því hve rækilega þau afhjúpa ríkjandi ástand.
Einlæg og kröftug bók sem opnar augu lesenda. ★★★★
„Heiðarleg og grimm. Kaldhæðin og hlý.“ ÓKÞ / Frétta-
blaðið
68 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Steinrunnin augu
Steindór Ívarsson
Steinrunnin augu er fjórða ljóðabók Steindórs Ívars-
sonar en hann gaf einnig út smásagnasafnið Hótel á
síðasta ári. Í þessari myndskreyttu ljóðabók ljær hann
höggmyndum í almenningsrými í Reykjavík rödd. Skila-
boð þeirra eru á stundum hárbeitt ádeila á samtímann
en einnig skondin og skemmtileg.
71 bls.
Steindór Ívarsson
45
Ljóð og leikrit