Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 46
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
Listir og ljósmyndir
D
111
Spessi
Efra-Breiðholt og íbúar þess birtast í öllum sínum fjöl-
breytileika í einstökum ljósmyndum Spessa, sem bera
það með sér að hann hefur náð náinni og einstakri teng-
ingu við viðfangsefni sín en gætir þess um leið að halda
hæfilegri fjarlægð og sýna þeim virðingu. Myndirnar
veita nýja og óvænta sýn á hverfi sem á margan hátt er
óvenjulegt í borginni. Eftirmála rita Mika Hannula og
Æsa Sigurjónsdóttir.
144 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
D
Barflies Reykjavík 2
Snorri Bros
Kaffibarinn í Reykjavík er einn nafntogaðasti samkomu-
staður Íslandssögunnar. Í tilefni af 25 ára afmæli hans
kemur út ný og stóraukin útgáfa hinnar sígildu bókar,
Barflies Reykjavík, eftir tvíeykið Snorri Bros., gefin út í
samstarfi við powerHouse í New York.
304 bls.
Crymogea
G
Bolur dagsins X ára
Örn Smári Gíslason
Bókin er samantekt graf íkur sem höfundur gerði
mánuðina í kringum hrun og segir þá sögu á tímalínu
frá 21. júlí 2008 til janúarloka 2009 auk 18 seinnitíma-
bola. Heiti bókarinnar vísar til þess að graf íkin var birt
sem hönnun á t-boli sem kallað var bolablogg. Bókin er
á tveimur tungumálum, íslensku og ensku og því góð
gjöf til vina erlendis.
188 bls.
Ansans – Örn Smári slf.
D
Hringfarinn / Sliding Through
Einn á hjóli í hnattferð / Around the world on a motorbike
– Alone
Kristján Gíslason og Helga Guðrún Johnson
Falleg og litrík bók um einstakt ferðalag kerfisfræðings
sem fór einn á mótorhjóli í kringum hnöttinn. Kristján
Gíslason kynntist gæsku og gestrisni fólks um allan
heim og skilar hér ferðasögunni í myndum og máli. Það
þurfti kjark til að takast þessa ævintýraferð á hendur en
vonandi verður bókin öðrum hvatning til að láta sína
drauma rætast. Söluandvirði bókarinnar rennur óskipt
til góðgerðarmála. Bókin er einnig fáanleg á ensku og
heitir þá Sliding Through.
189 bls.
Sliding Through
G
Villimaður í París
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
Myndir: Eggert Þór Bernharðsson
Villimaður í París er þriðja ljóðabók Þórunnar. Þetta
eru Parísarljóð innblásin af dvöl þeirra hjóna, Þórunnar
og Eggerts Þórs, við Signubakka vorið 2013. París er
skoðuð með augum ljósmyndarans Eggerts og sögulegri
sýn Þórunnar. Bókin er tileinkuð Eggerti (1958–2014).
80 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
G
Vistarverur
Haukur Ingvarsson
Með þessari bók kemur skáldið með ferskan og frjóan
andblæ inn á ljóðasviðið. Ort er um hinar ýmsu vistar-
verur innra með manneskjunni sem og úti í hinum
stóra heimi og dregnar eru upp myndir sem eru í senn
margræðar og skemmtilega óvæntar. Höfundur hefur
áður sent frá sér skáldsögu og fræðirit en hér er á ferð
önnur ljóðabók hans og fyrir hana hlaut hann Ljóða-
verðlaun Tómasar Guðmundssonar 2018.
85 bls.
Forlagið – Mál og menning
G
Vör/Lip
Anne Carson
Bókin er uppseld hjá útgefanda.
43 bls.
Tunglið forlag
E
Þessa heims
Guðrún Hannesdóttir
Frá Guðrúnu birtist nýtt safn ljóða í hennar sjöundu
bók. Sem fyrr eru ljóð hennar þéttur en látlaus vefur
þar sem saman koma forn minni lands og lífshátta,
kröftug myndauðgi í meitluðu máli, þungri alvöru og
sáru gamni. Í safni fimmtíu og þriggja ljóða kallast hún
á við hefð og nýja tíma, þenur út skynjun á ljóðmáli og
heim skáldlistarinnar.
67 bls.
GH
G
Því miður
Dagur Hjartarson
Athugið að bókin kann að innihalda hljóðritunarbúnað.
50 bls.
Tunglið forlag
46
Ljóð og leikrit