Bókatíðindi - 01.12.2018, Qupperneq 47
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Róf
Haraldur Jónsson
Ritstj.: Markús Þór Andrésson
Róf beinir sjónum að ferli myndlistarmannsins Haraldar
Jónssonar. Í bókinni er fjöldi mynda og aðgengilegar
greinar sem veita innsýn í viðfangsefni listamannsins.
Rætur Haraldar liggja í fyrirbærafræði og hann hefur
fengist við fjölbreytt viðfangsefni s.s. tengsl manns og
rýmis, vitundar og umhverfis. Greinar rita Sigríður
Þorgeirsdóttir, Sjón, Markús Þór Andrésson, Ólöf K.
Sigurðardóttir og Kristín Ómarsdóttir sem tók viðtal
við listamanninn.
152 bls.
Listasafn Reykjavíkur
D
Somewhere in Iceland
Páll Stefánsson
Glæsileg ljósmyndabók eftir einn reyndasta og snjall-
asta ljósmyndara þjóðarinnar. Texti bókarinnar er á
ensku og formála skrifar Elisa Reid, forsetafrú.
Til bæði í litlu og stóru broti.
160 bls.
Bjartur
G
Tengingar / Connections
Sigurjón Ólafsson og nokkrir samferðamenn hans /
Sigurjón Ólafsson and some of his contemporaries
Aðalsteinn Ingólfsson
Ritn.: Birgitta Spur og Harpa Þórsdóttir
Útgáfustjóri: Svanfríður Franklínsdóttir
Sýningarskrá með sýningunni Tengingar í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar, með verkum 14 myndlistarmanna
sem tengdust Sigurjóni Ólafssyni og list hans. Mynd-
skreytt sýningarskrá á íslensku og ensku þar sem Aðal-
steinn Ingólfsson listfræðingur skoðar verkin í listfræði-
legu samhengi og fjallar einnig um persónuleg tengsl
Sigurjóns og þessara myndlistarmanna.
52 bls.
Listasafn Íslands
D
Þingvellir – í og úr sjónmáli
Harpa Rún Kristjánsdóttir
Myndir: Pálmi Bjarnason og Sigrún Kristjánsdóttir
Afar glæsileg myndabók um Þingvelli, prýdd skáld-
legum og óvenjulegum texta þar sem sagan og þjóðin
birtast okkur í nýstárlegu ljósi. Bókin er tvímála á ensku
og íslensku. Falleg gjafabók, heima og erlendis.
224 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
D
Höfuðljóð
Leifur Breiðfjörð
Höfuðljóð er nýstárleg bók. Tólf þjóðþekkt skáld tókust
á við þá áskorun að semja ljóð út frá höfuðmyndum
listamannsins Leifs Breiðfjörð en jafnframt birtast
hér myndir hans: tólf hausar, tólf ljóð. Þannig mætast
þrettán öflugir listamenn og leiða saman ólík form og
búa til nýjan galdur sem orkar á lesendur á frumlegan
og skapandi hátt.
32 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
D
Ísland
Allt sem er
Max Milligan
Undanfarin ár hefur skoski ljósmyndarinn Max
Milligan unnið að gerð þessarar glæsilegu bókar um
Ísland sem spannar flest það sem skiptir máli þ.e.
náttúruna, atvinnulífið, sögu og menningu.
Max hefur um árabil unnið fyrir National
Geographic og BBC. Bókin verður gefin út á bæði
íslensku og ensku
272 bls.
Nýhöfn
D
Jökull
Ragnar Axelsson
Formáli: Ólafur Elíasson myndlistarmaður
Hönnun: Einar Geir Ingvarsson
Jökull er óður til jökla á Íslandi, myndræn lofgjörð eftir
Ragnar Axelsson. Ragnar ólst upp í grennd við jökla
og hefur flogið vél sinni í ótal skipti yfir hjarnbreiður
þeirra. Hann er því nátengdur freðanum sem hefur
mótað land og hugarheim Íslendinga og heillað Ragnar
allt fá öndverðu. Nær því óhlutdrægar svart-hvítar
myndir og gagnorðir, íhugulir textar opna okkur sýn
yfir form, áferð og mynstur jökla eins og þau birtast á
flugi sem hefst ofar skýjum og lýkur við sjávarmál.
200 bls.
Qerndu
G
Langa blokkin í Efra Breiðholti
The Long Apartment Block in Upper Breiðholt
David Barreiro
Ritstj.: Ingunn Jónsdóttir
Ritn.: Margrét Hallgrímsdóttir og Inga Lára Baldvinsdóttir
Lengd byggingarinnar er um 320 metrar og í fljótu
bragði líkist hún helst virkisvegg. Í tuttugu stigagöngum
og 200 íbúðum búa nokkur hundruð manns. David
Barreiro ljósmyndaði bygginguna, íbúana og umhverfið
heima hjá þeim. Íbúarnir eiga það sameiginlegt að hafa
flust til Íslands víða að úr heiminum.
93 bls.
Þjóðminjasafn Íslands
D
Reykjanesskagi
Náttúra og undur
Ellert Grétarsson
Reykjanesskaginn býr yfir stórfenglegri náttúru sem er
engri annarri lík! Í þessari fallegu bók gefur að líta úrval
ljósmynda Ellerts Grétarssonar sem hann hefur tekið
á undanförnum tólf árum. Áhrifaríkar myndir Ellerts
sýna okkur undursamlega töfraveröld.
160 bls.
Nýhöfn
47
Listir og ljósmyndir