Bókatíðindi - 01.12.2018, Page 49
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
Ævisögur og
endurminningar
E
Amma – Draumar í lit
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
Bókin Amma – Draumar í lit er blæbrigðarík
og næm frásögn Hólmfríðar Helgu Sigurðardóttur
blaðamanns af lífshlaupi ömmu hennar, Hólmfríðar
Sigurðardóttur, sem var fyrsta stúlkan frá Raufarhöfn til
að fara í menntaskóla. Hún varð húsmóðir í Reykjavík,
síðar ástríðufullur kennari barna með þroskahömlun og
loks skáld á efri árum. Hólmfríður er sjö barna móðir
en á meðal barna hennar eru Vigdís Grímsdóttir rit-
höfundur og rannsóknarlögreglumaðurinn Grímur
Grímsson. Þetta er falleg kvennasaga sem veitir innsýn í
hverfandi lífshætti og samfélagsgerð.
90 bls.
Útgáfufélagið Stundin
D
Aron – sagan mín
Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson opnar
sig upp á gátt í þessari mögnuðu bók. Lesandinn fylgir
honum frá fyrstu skrefum á Akureyri yfir á stærsta
svið heims þar sem hann glímdi við menn á borð við
Ronaldo og Messi. Einstök innsýn í líf atvinnumanns-
ins, ævintýri landsliðsins og það sem gerist bak við
tjöldin þegar myndavélarnar eru fjarri.
304 bls.
Fullt tungl
G
Bylting
Sagan sem breytti Íslandi
Hörður Torfason
Hörður Torfason tónlistarmaður veitir einstaka innsýn í
einhverja mikilvægustu atburði í sögu þjóðarinnar, þegar
tugþúsundir Íslendinga komu saman til að mótmæla
ríkisstjórninni á fundum sem hann skipulagði og mótaði.
Hörður segir frá því sem gerðist að tjaldabaki og birtir
brot úr dagbókarfærslum sínum. Rifjaðir eru upp frétta-
viðburðir og sýndar ljósmyndir frá vettvangi frá þessum
viðburðaríka tíma. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórn-
sýslufræðingur greinir áhrif Búsáhaldabyltingarinnar á
samfélagið. Fjöldi annarra segja frá upplifun sinni.
192 bls.
Útgáfufélagið Stundin
E I
Ekki gleyma mér
Kristín Jóhannsdóttir
Kristín Jóhannsdóttir hélt til náms austur fyrir járntjald
árið 1987. Í tvo áratugi sat hún á sér en gat svo ekki
meir. Hafði maðurinn sem hún elskaði bara verið
Stasí-njósnari?
„Spennandi og rígheldur lesandanum, ekki hvað
síst vegna sögu elskendanna og örlaga þeirra.“
BB/Fréttablaðinu
270 bls.
Bjartur
D
Kambsmálið
Engu gleymt, ekkert fyrirgefið
Jón Hjartarson
Vorið 1953 létu yfirvöld bjóða upp dánarbú bónda
á Kambi í Árneshreppi. Móðirin var á berklahæli en
heima fyrir börnin átta, það elsta 18 ára. Eftir uppboðið
átti að ráðstafa börnunum eftir fornum reglum um
sveitarómaga. En 18 ára stúlka fyrirbýður að systkina-
hópnum sé tvístrað og hreppstjórinn verður að lúpast
burt.
112 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
D
Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi
Arnþór Gunnarsson
Frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari hafa flugsam-
göngur gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi,
bæði innanlands og milli landa. Grundvöllur þessarar
starfsemi hvílir á rekstri flugvalla og flugleiðsögu-
þjónustu. Hér er rakin spennandi saga þessara stoða
flugsins allt frá því að landsmenn fóru fyrst að þreifa
fyrir sér um flugrekstur. Bókin er í stóru broti og búin
fjölmörgum glæsilegum ljósmyndum.
544 bls.
Isavia
F C
Skagamenn
í gamni og alvöru
Bragi Þórðarson
Safn þátta sem Bragi Þórðarson hefur ritað og birt
í Árbókum Akurnesinga á liðnum árum. Í þessum
skrifum hefur Bragi ofið saman ýmsa þræði úr ævi sinni
og starfi, allt frá bernsku til efri ára, og gefa þættirnir
innsýn í lífshlaup hans. Hér er brugðið upp skemmti-
legum svipmyndum af samferðafólki og sagðar sögur af
því, í gamni og alvöru.
H 5:48 klst.
emma.is
G I
Þar minnast fjöll og firðir
Ástvaldur Guðmundsson og Lýður Björnsson
Bók sem veitir innsýn í lífið í afskekktri sveit á Vest-
fjörðum sem lítið hefur verið fjallað um áður. Sennilega
er hvergi hægt að nálgast jafn ítarlegar heimildir um
Gufudalshrepp, íbúa hans, jarðir og landshætti frá fornu
fari til nútíma.
Hvar er hinn heimsfrægi Teigsskógur og Hallsteins-
nes? Svona má endalaust spyrja. Svörin er mörg að
finna í þessari bók.
229 bls.
Vestfirska forlagið
49
Saga, ættfræði og héraðslýsingar