Bókatíðindi - 01.12.2018, Qupperneq 50
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D F
Hasim
– götustrákur í Kalkútta og Reykjavík
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Sex ára strákur er settur aleinn upp í lest og hafnar í
stórborg þar sem enginn tekur á móti honum. Næstu
árin er hann umkomulaus og einn í heiminum. Svo
er hann sendur yfir hálfan hnöttinn, úr örbirgð í alls-
nægtir. En að ári liðnu er hann aftur einn. Hasim
Ægir Khan á sér ótrúlega sögu – sögu af hrakningum,
höfnun, baráttuvilja og dug. Einstök frásögn.
198 bls.
Forlagið – JPV útgáfa
G
Heiðra skal ég dætur mínar
Lene Wold
Þýð.: Örn Þ. Þorvarðarson
Lene Wold hefur varið miklum tíma í Jórdaníu undan-
farin þrjú ár með föður sem drap móður sína og aðra
af tveimur dætrum sínum til að endurheimta heiður
fjölskyldunnar.
Þetta er sérstök og harmþrungin saga sem lætur
lesandann ekki ósnortinn.
186 bls.
Draumsýn
D F
Henny Hermanns
– Vertu stillt!
Margrét Blöndal
Henny Hermanns varð goðsögn þegar hún var valin
Miss Young International – alheimstáningurinn – árið
1970. Hún lifði sannkölluðu glæsilífi en tilveran á bak
við glansmyndina var oft sár og nöpur.
Margrét Blöndal skrifar sögu Henny af innsæi og
næmni, og miðlar jafnframt andblæ þessa tíma.
304 bls.
Bjartur
D
... hjá grassins rót
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir
Maðurinn er aldrei einn. Allir eiga formæður og for-
feður. Hér segir af fólki sem elskaði og missti, gladdist
og hryggðist, tók því sem að höndum bar. Hólmfríður
K. Gunnarsdóttir segir sögur af fólki sínu, formæðrum
og forfeðrum, jafnframt því að rifja upp minningar
frá því hún var barn í norðlenskum dal og framtíðin
óskrifað blað.
310 bls.
Tindur
D F
Hornauga
Ásdís Halla Bragadóttir
Á fullorðinsárum stóð Ásdís Halla andspænis
nýfundnum genum sínum eftir að hafa komist að því
hver blóðfaðir hennar er. Hún segir hér stórmerka sögu
formæðra sinna í föðurlegg og án þess að draga nokkuð
undan lýsir hún því hvernig hún missti stjórn á rás
atburðanna með ófyrirséðum afleiðingum.
255 bls.
Veröld
E
Ég kaus frelsið
Víktor Kravtsjenko
Formáli: Dr. Hannes H. Gissurarson
Víktor Kravtsjenko lýsir hungursneyðinni í Úkraínu,
hreinsunum Stalíns og þrælkunarbúðum. Kommún-
istar á Vesturlöndum, þar á meðal hér, réðust á hann
af öllu afli. Lárus Jóhannesson, lögfræðingur, þýddi
bókina, sem kom fyrst út hér 1951. Fjörlega skrifuð, en
átakanleg og áhrifamikil. „Ég hef fáar bækur lesið jafn-
skemmtilegar og fróðlegar sem sjálfsævisögu Kravtsjen-
kos,“ sagði Ólafur Thors forsætisráðherra.
584 bls.
Almenna bókafélagið
D
Frjáls eins og fuglinn
Myndir og minningar
Mats Wibe Lund
Í þessari bók rekur Mats Wibe Lund ljósmyndari minn-
ingar sínar en jafnframt er bókin yfirlit um ljósmynda-
feril hans sem spannar meira en 60 ár.
175 bls.
Skrudda
D
Gandreið á geimöld
Ragnar Arnalds
Í bókinni Æskubrek á atómöld sem út kom 2017 sagði
Ragnar Arnalds frá æskuárum sínum og vaknandi póli-
tískum áhuga fram til þess að hann var kosinn á þing
í júní 1963, 24 ár gamall. Störfum hans á Alþingi lauk
36 árum síðar vorið 1999. Í þessari bók segir hann frá
ýmsum þeim samferðamönnum sem hann átti hvað
mest samskipti við á löngum stjórnmálaferli, en Ragnar
var formaður Alþýðubandalagsins um langt skeið og
átti sæti í tveimur ríkisstjórnum, fyrst sem ráðherra
mennta- og samgöngumála á árunum 1978–80 og síðan
sem fjármálaráðherra á árunum 1980–83.
440 bls.
Tindur
D F
Geðveikt með köflum
Sigursteinn Másson
Af einlægni, hispursleysi en líka kankvísi fjallar Sigur-
steinn um lífshlaup sitt og andleg veikindi, hvernig
hann sá samsæri í hverju horni, og td. um þátt Guð-
mundar- og Geirfinnsmála í veikindunum.
Áhrifamikil frásögn um tvísýna baráttu og hvernig
höfundi tókst að ná tökum á geðsjúkdómi sínum.
200 bls.
Bjartur
D
Gunnar í Hrútatungu
Genginn ævivegur
Gunnar Sæmundsson
Hér segir frá unglingi sem var of efnalítill til að komast
í Héraðsskólann á Reykjum. En einnig vormanni í upp-
risu sveitanna til nýrrar velmegunar með vélvæðingu og
framförum á seinni hluta 20. aldar. Bændahreyfingin,
stofnbréf í sparisjóði, hrafn með mannsvit og snjór
á Holtavörðuheiði. Fróðleg bók, rituð á kjarngóðri
íslensku.
384 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
50
Ævisögur og endurminningar