Bókatíðindi - 01.12.2018, Side 53

Bókatíðindi - 01.12.2018, Side 53
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 D Heilnæmi jurta og hollusta matar Margrét Þorvaldsdóttir og Sigmundur Guðbjarnason Hér er m.a. fjallað um forvarnir gegn sjúkdómum og að finna fróðleik um þá eiginleika jurta, ávaxta og efna í þeim sem styrkja varnir gegn sjúkdómum og geta gagnast í baráttunni við sýkla. Þá er greint frá hættum af hormónatruflandi efnum sem berast í líkamann með mat og snyrti- og hreinlætisvörum sem og gömlum ís- lenskum heimildum um jurtalækningar. 206 bls. Háskólaútgáfan D Hvað er í matinn? Jóhanna Vigdís gefur uppskriftir að einföldum mat fyrir alla daga vikunnar Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir Myndir: Magnús Hjörleifsson og Silja Magg Góð máltíð í dagslok er ekki bara næring, heldur líka einstök samverustund. Hér kemur Jóhanna Vigdís með tillögur að einföldum, gómsætum og girnilegum réttum fyrir öll kvöld vikunnar – í níu vikur – og hefur víða leitað hugmynda, hérlendis og erlendis. Hún er þekkt fyrir að elda ljúffenga sælkerarétti og hefur áður sent frá sér tvær vinsælar matreiðslubækur. 160 bls. Forlagið – JPV útgáfa D Kraftbjór Euan Ferguson Þýð.: Hafsteinn Thorarensen Heimsins bestu brugghús opna bækur sínar í fyrsta sinn, ausa úr viskubrunni sínum og deila uppskriftum svo að þú getir orðið heimsklassa heimabruggari. Fleiri en 60 uppskriftir frá Brewdog, Mikkeller, Evil Twin, Omnipollo, Beavertown, Lagunitas, íslensku brugghús- unum og mörgum fleiri. Skyldueign bjóráhugamanna. 226 bls. Salka / Útgáfuhúsið Verðandi Matur og drykkur D Beint í ofninn Heimilismatur og hugmyndir Nanna Rögnvaldardóttir Matreiðslubók fyrir alla sem langar til að bera fram hollan og gómsætan mat, eldaðan frá grunni, án þess að eyða löngum tíma í eldhúsinu. Eftir stuttan undirbún- ing þarf bara að stinga réttinum í ofninn og fara að huga að öðru – maturinn sér um sig sjálfur. Leiðbeiningar fylgja um hvernig megi breyta uppskriftum, aðlaga þær að því sem til er í skápunum, nýta afganga og forðast matarsóun. 217 bls. Forlagið – Iðunn D Góðborgarar Nina Olsson Þýð.: Helga Soffía Einarsdóttir Grænmetisborgari framtíðarinnar er hér kynntur til sögunnar. Hann er ekki aðeins augnayndi heldur líka virkilega ljúffengur, girnilegur og ómótstæðilegur, meira að segja fyrir alæturnar. Hér er að finna bragð og keim frá öllum heimshornum. Einstakar uppskriftir að næringarríkum grænmetisborgurum, brauði, sósum og hnossgæti. 160 bls. Angústúra D Grillmarkaðurinn Hrefna Rósa Sætran Myndir: Björn Árnason Grillmarkaðurinn hefur verið meðal vinsælustu veitingastaða landsins síðan hann opnaði árið 2011. Aðalstef Grillmarkaðarins er samspil íslenskra hefða og nútímans og þessi bók geymir vinsælustu uppskriftir veitingastaðarins. Bókin kemur út bæði á íslensku og ensku. 156 bls. Salka / Útgáfuhúsið Verðandi D Grænkerakrásir Guðrúnar Sóleyjar vegan uppskriftir fyrir mannúðleg matargöt Guðrún Sóley Gestsdóttir Myndir: Rut Sigurðardóttir Heill heimur opnaðist fyrir mér þegar ég varð vegan og ég trúði varla möguleikunum sem öll þessi hráefni bjóða upp á; kryddin, ferska grænmetið, baunirnar, ávextirnir, jurtirnar, hneturnar, fræin. Pastað! Pizzurnar! Hamborgararnir! Kökurnar, kruðeríið og sælgætið. Og sósurnar – maður lifandi, sósurnar! Hér er á ferðinni gullfalleg matreiðslubók með frábærum vegan upp- skriftum. 168 bls. Salka / Útgáfuhúsið Verðandi 53

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.