Bókatíðindi - 01.12.2018, Page 55

Bókatíðindi - 01.12.2018, Page 55
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 E Að fortíð skal hyggja Samant.: Hallgrímur Sveinsson Einar Benediktsson orti: „Að fortíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja, án fræðslu þess liðna sést ei, hvað er nýtt.“ Hér er hugað að fortíð jarðanna Rauðsstaða og Borgar við merk tímamót í samgöngusögu Vestfjarða. Gangamunni Dýrafjarðarganga er örskammt frá bæjar- stæði Rauðsstaða og stutt til Borgar. 54 bls. Vestfirska forlagið E Aðlöðunaraflið Ekkert leyndarmál lengur Þormóður Símonarson Hér er útskýrt hvernig hægt er að bæta lífið með því að breyta um hugarfar. Með einföldum aðferðum er hægt að auka gleði og jákvæðni. Hér eru kynntar leiðir til að uppræta reiði og öfund en með fyrirgefningu og sjálfs- viðtekt eflir þú líf þitt og gjafir þess. www.leyndarmalid.is 112 bls. Tvíoddi útgáfa G Af hverju strái Árni Daníel Júlíusson Í þessari bók eru heimildir um umhverfissögu Íslands á tímabilinu 1300–1570 kannaðar. Fæstar af þeim heim- ildum hafa verið skoðaðar áður, sérstaklega allar þær heimildir sem er að finna í Íslenska fornbréfasafninu. Árangurinn er að ný mynd af umhverfissögu landsins á tímabilinu birtist, mynd sem mun koma mörgum á óvart. Háskólaútgáfan G Afbrot og íslenskt samfélag Helgi Gunnlaugsson Bókin er innlegg í umræðu um íslenskt samfélag og þróun þess frá sjónarhorni félags- og afbrotafræðinnar. Tilgangur hennar er að koma á framfæri aðgengilegu íslensku lesefni um afbrot á Íslandi og um leið að vekja áhuga og umræður um málefnið. Stuðst er við viðhorfs- mælingar, opinber gögn, rýnihópa, fjölmiðla og niður- stöður sem túlkaðar eru í ljósi alþjóðlegs samanburðar. 312 bls. Háskólaútgáfan G Almanak Háskóla Íslands 2019 Ritstj.: Gunnlaugur Björnsson og Þorsteinn Sæmundsson 183. árgangur. Auk dagatals má hér finna upplýsingar s.s. um sjávarföll og gang himintungla, elstu fyribæri á himni séð frá Íslandi, stjörnukort, yfirlit um hnetti himingeimsins, mælieiningar, veðurfar, stærð, mann- fjölda o.m.fl. Þá eru birtar nýjar greinar um fjarlægðir í geimnum og nýjar niðurstöður um stærð Vetrar- brautarinnar. 96 bls. Háskólaútgáfan Fræði og bækur almenns efnis G 100 vestfirskar gamansögur 2. Úr sagnabanka Vestfirska forlagsins Samant.: Hallgrímur Sveinsson Enn förum við á flot með gamansögur úr hinum mikla þjóðsagnabanka Vestfirska forlagsins af Vestfirðingum. 100 stykki takk. Margar hafa þær komið á prenti áður í bókunum að vestan og víðar. Sögurnar lýsa orðheppni Vestfirðinga og hæfileika þeirra til að fanga augnablikið. Þær eru býsna góðar mannlýsingar og út úr þeim má lesa ýmsa karaktera. 112 bls. Vestfirska forlagið E 104 sannar Þingeyskar lygasögur Jóhannes Sigurjónsson Hér segir m.a. frá tugthúslimum í stjórn KÞ, Heiðari bómudrelli, drulludelum í Skúlagarði, bremsulausum Lúther, Alla Geira, Lenín á Rauðatorginu, Þórhalli í fimmtugri skyrtu, The Everyhole brothers í Öxar- firði, lærleggjaspaugsemi séra Sighvats, glæpakvendi á Hjarðarhólnum og er þá fátt eitt upptalið. Þessa bók verðurðu bara að lesa. 88 bls. Bókaútgáfan Hólar E 130 vísnagátur Páll Jónasson frá Hlíð Hér finnurðu 130 vísnagátur, bæði léttar og erfiðar, en allar skemmtilegar. Hver þraut gengur út á ákveðið orð sem þú reynir að finna út frá vísbendingum í hverri ljóðlínu. Þessi bók er ómissandi á hverju heimili, en hentar líka vel í ferðalagið, sumarbústaðinn og á vinnu- staðinn. 70 bls. Bókaútgáfan Hólar D Að búa til ofurlítinn skemmtigarð Íslensk garðsaga – landslagsarkitektúr til gagns og prýði Einar E. Sæmundsen Einstakt yfirlitsverk um sögu og þróun íslenskrar garð- hönnunar og er umhverfismótunin sett í samhengi við rætur íslenskrar menningar og tengd alþjóðlegum straumum og stefnum. Fjallað er um sögu garða á Íslandi en einkum um tímabilið frá þéttbýlismyndun þegar almenningsgarðar og útivistarsvæði urðu hluti af skipulagsgerðinni. 397 bls. Hið íslenska bókmenntafélag 55

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.