Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 57

Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 57
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 E „Ekki misskilja mig vitlaust“ - Mismæli og ambögur Guðjón Ingi Eiríksson Guðbjartur Jónsson fullyrðir að „margt smátt geri eitt lítið“. Lási kokkur hefur „vaðið fyrir ofan sig“. Heimir Már Pétursson segir „heilbrigðisráðherra hafi tekið ákvörðunina að höfðu samræði við lækna“. Eyþór í Lindu fullyrðir að „ekki séu allir peningar til fjár“. Ingófur Bjarni flytur frétt sem á „einkum við um vanfærar konur á barneignaraldri“. Ína af Ströndum vill vera „dauð fluga á vegg“. Og Vigdís Hauksdóttir, drottning mismælanna, ætlar ekki að „stinga höfðinu í steininn“. Þetta er bara brotabrot af snilldinni sem hér má finna.80 bls. Bókaútgáfan Hólar D Flóra Íslands Blómplöntur og byrkningar Hörður Kristinsson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir Myndir: Jón Baldur Hlíðberg Flóra Íslands er yfirgripsmesta rit sem út hefur komið um íslensku flóruna. Hér er fjallað um allar 467 tegundirnar og þeim gerð ítarleg skil í máli, kortum og stórkostlegum vatnslitamyndum. Einstaklega fallegt og fróðlegt stórvirki sem á erindi inn á öll íslensk heimili. 744 bls. Forlagið – Vaka-Helgafell D I Forystu-Flekkur Ritstj.: Einar Sæmundsen Fallegar dýrasögur úr gamla bændasamfélaginu sem lýsa ástríku sambandi manna og dýra og einstökum vitsmunum málleysingjanna. Sögurnar eiga það sam- merkt að vera reynslusögur höfunda af samskiptum sínum við dýrin. Sögur sem láta engan ósnortinn og eiga erindi við unga sem aldna. Falleg endurútgáfa. 144 bls. Bókaútgáfan Sæmundur E Framtíð smáþjóðanna Arnulf Øverland Árin milli stríða var Arnulf Øverland eitt dáðasta skáld Norðmanna. Eftir seinna stríð snerist hann gegn kommúnisma. Þegar hann hélt fyrirlestra um vanda Norðurlanda í öryggis- og varnarmálum á Íslandi vorið 1948, réðust íslenskir kommúnistar harkalega á hann. Í þessu riti eru fyrirlestrar Øverlands á Íslandi ásamt nokkrum öðrum erindum. 108 bls. Almenna bókafélagið G F Bætt melting – betra líf Michael Mosley Þýð.: Guðni Kolbeinsson Meltingin er grunnur allrar starfsemi líkamans og hefur áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Hér fer læknirinn Michael Mosley, höfundur bókanna 5:2-mataræðið og 8 vikna blóðsykurkúrinn, í ferðalag um meltingar- veginn, skýrir starfsemi hans og mikilvægi heppilegs mataræðis. Í bókinni er fjöldi uppskrifta að girnilegum réttum sem bæta meltinguna. 299 bls. Forlagið – Vaka-Helgafell F Death and Governmentality Neo-liberalism, Grief and the Nation-form Ritstj.: Arnar Árnason og Sigurjón Baldur Hafsteinsson A contribution to debates concerning the state of death in the contemporary Western world. Death has recently undergone a revival, the book problematizes the idea that this revival is caused by general trends in society i.e. rising individualism. The book describes a link between the revival of death in Iceland and neo-liberal governmentality 170 bls. Háskólaútgáfan D Dvergasteinn Þjóðsögur og sagnir úr Djúpavogshreppi Alda Snæbjörnsdóttir Þjóðsögur og sagnir úr Djúpavogshreppi. Hér koma fyrir ýmsir kynlegir kvistir og kynjaverur. Draugarnir Skála-Brandur og Voga-Móri, flækingurinn Gvendur ralli, Menglöð tröllkona, huldufólk og álagablettir, úti- legumenn, slysfarir, áheit á helga menn, fornar sagnir og margt fleira mætti telja. 304 bls. Skrudda D Einar Jónsson myndhöggvari Verk, táknheimur og menningarsögulegt samhengi Ólafur Kvaran Einar Jónsson (1874–1954) var brautryðjandi í íslenskri höggmyndalist. Í þessari bók er fjallað um stórbrotinn listferil hans, merkingarheim höggmyndanna, listræna hugmyndafræði og viðtökur á Íslandi. 280 bls. Hið íslenska bókmenntafélag D Eins og skot Handbók um skotfæri, hleðslu þeirra, notkun og virkni Böðvar B. Þorsteinsson Í þessari bók er fjallað um skotfæri, samsetningu þeirra og virkni. Hér er að finna þróunarsögu skotfæra í gegn um aldirnar. Fjallað er um patrónur, hvellhettur, púður og byssukúlur og val á þeim út frá fyrirhugaðri notkun. Sagt er frá því hvernig meta skal gæði skotfæranna og kalla fram nákvæmni og hittni o.fl. o.fl. 550 bls. Skrudda 57 Fræði og bækur almenns efnis
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.