Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 60
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
G
Hnignun, hvaða hnignun?
Goðsögnin um niðurlægingartímabilið í sögu Íslands
Axel Kristinsson
Var miðbikið í sögu Íslands tími hnignunar og volæðis?
Voru Íslendingar fátækir, frumstæðir og vesælir? Var
Ísland fátækasta land Evrópu? Hér eru færð sterk rök
fyrir því að hugmyndin um hnignun og niðurlægingu
í sögu Íslands sé pólitísk goðsögn, sköpuð í þjónustu
margs konar hugmyndafræði. Bók sem enginn áhuga-
maður um sögu landsins má missa af.
280 bls.
Sögufélag
G
Hugsað með Aristótelesi
Ritstj.: Svavar Hrafn Svavarsson
Bókin er safn kafla um ólíkar hliðar á heimspeki Ari-
stótelesar. Meðal efnis: Grímur Thomsen: Aristóteles,
Ólafur Páll Jónsson: Vegvísir um Frumspekina, Henry
Alexander Henrysson: Hvers vegna að spyrja til hvers?,
Svavar Hrafn Svavarsson: Aristóteles, farsældin, náung-
inn og guð, Geir Þórarinn Þórarinsson: Farsæld í Sið-
fræði Evdemosar, Eiríkur Smári Sigurðarson: Antifon
og dýr Aristótelesar, Vilhjálmur Árnason: Aristóteles og
Habermas, Geir Sigurðsson: Hugsað með Aristótelesi
um Konfúsíus og öfugt og Björn Þorsteinsson: Vorkunn
og raunir í Skáldskaparlist Aristótelesar
Háskólaútgáfan
E
Hugsanir hafa vængi
Konráð Adolphsson
Sérlega góð sjálfshjálparbók eftir Konráð Adolphsson,
stofnanda Dale Carnegie á Íslandi. Uppfull af góðum
ráðum. Hugsanir hafa mikil áhrif á líf okkar og fram-
kvæmdir. Þær hafi áhrif á hvernig við tölum, viðhorfum,
ákvörðunum og tilfinningum. Hegðun og samskipti
byggjast á hugsunum okkar en við höfum val. Fyrst
þurfum við að skilja kraftinn að baki hugsuninni.
176 bls.
Konráð Adolfsson
D
Heyannir
Um baráttu þjóðar fyrir lífi sínu
Þórður Tómasson
Heyskapur þjóðarinnar í þúsund ár, verkfæri og vinnu-
brögð, siðir, þjóðtrú og málfar. Rosablettir í túni, hey-
flutningar á vögum, sögur af sláttukonum, engjafang
og vitaskuld töðugjöld. Hér er miklum fróðleik til skila
haldið í einstaklega glæsilegum grip sem rekur hey-
skaparsöguna allt fram í tíma hestasláttuvéla.
260 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
D
Hinir útvöldu
Sagan af því þegar Ísland varð sjálfstætt ríki árið 1918
Gunnar Þór Bjarnason
1. desember 1918 var ríkisfáni Íslands dreginn að hún
í fyrsta sinn og Ísland varð fullvalda ríki. Sagan um
þetta er rakin í lifandi og myndskreyttri frásögn, sagt
frá eftirminnilegum einstaklingum, hörðum átökum og
þjóðlífi í skugga heimsstyrjaldar og áfalla hið viðburða-
ríka ár 1918. Var þessi fámenna þjóð í stakk búin til að
reka sjálfstætt ríki?
404 bls.
Sögufélag í samstarfi við Afmælisnefnd aldarafmælis
sjálfstæðis og fullveldis Íslands
D F
Hjarta Íslands
Perlur hálendisins
Gunnsteinn Ólafsson og Páll Stefánsson
Í bókinni sprettur hálendi Íslands fram í aðgengilegum
texta og stórbrotnum ljósmyndum. Fjallað er um
allar helstu perlur hálendisins frá Eiríksjökli í vestri
til Lónsöræfa í austri; frá Jökulsárgljúfrum í norðri til
Eyjafjallajökuls í suðri – svæðið sem gjarnan er kallað
hjarta Íslands.
192 bls.
Veröld
60
Fræði og bækur almenns efnis
kynntu þér úrval
nýrra fræðibóka
HELGINA 24. OG 25. NÓVEMBER Í HÖRPU