Bókatíðindi - 01.12.2018, Side 63
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
E F
Landkostir
Úrval greina um sambúð lands og þjóðar, 1927–1984
Halldór Laxness
Halldór Laxness var alla tíð ötull samfélagsrýnir og
skrifaði ókjör flugbeittra pistla og greina samhliða
skáldskapnum. Meðal þess sem hann fjallaði oft um
var náttúran og umgengni við hana. Hér er birt úrval
úr því sem hann skrifaði um þetta efni á löngu árabili –
greinar sem allar eiga erindi við samtímann, hver á sinn
hátt. Halldór Þorgeirsson valdi.
215 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
G
Landnám Íslands
Ritstj.: Haraldur Bernharðsson
Innlendir og erlendir fræðimenn fjalla hér um landnám
Íslands frá ýmsum hliðum. Rætt er um Landnámabók
og heimildagildi hennar, goðsagnir, sagnaritun og sann-
leiksgildi fornsagna, skip og siglingar landnámsmanna,
garðlög og vistfræði landnáms, landnám tungumálsins
og hugmyndir um landnám á fyrri hluta 20. aldar.
230 bls.
Háskólaútgáfan
D
Landnámssögur við þjóðveginn
Jón R. Hjálmarsson
Í þessari einstöku vegahandbók slæst fræðaþulurinn
Jón R. Hjálmarsson í för með lesandanum um byggðir
landsins. Við kynnumst ekki aðeins frægustu land-
námsmönnunum — Ingólfi, Skalla-Grími, Hrafna-Flóka
og Auði djúpúðgu — heldur einnig ýmsum minna
þekktum, svo sem Önundi breiðskegg, Katli gufu,
Þóri dúfunefi, Hrolleifi mikla og ekkjunni Þorgerði.
Fróðleg og skemmtileg vegahandbók þar sem sagðar
eru kynngimagnaðar sögur af fornfrægum landnáms-
mönnum og heimkynnum þeirra.
228 bls.
Ugla
E
Konan sem át f íl og grenntist (samt)
Margrét Guðmundsdóttir
Það á ekki að vera leiðinlegt að lesa um það sem skiptir
máli. Frábærlega vel skrifuð bók um baráttuna við auka-
kílóin. Í ljós kemur að hún snýst um hormón, frekar en
hitaeiningar. Það hafði þá aldrei vantað viljastyrk til að
léttast – heldur mataræði sem hentaði líkamanum.
128 bls.
Folda
D
Kristur. Saga hugmyndar
Sverrir Jakobsson
Jesús Kristur er einn áhrifamesti einstaklingur í sögu
mannkyns en þó er deilt um nánast allt sem honum
tengist. Var hann maður eða andi, sonur guðs eða
venjulegur maður? Ár hvert koma fram nýjar kenn-
ingar um Krist og eðli hans. Bók þessi fjallar um upphaf
rótgróinna hugmynda um Krist, hvernig þær mótuðust
og af hverju þær eru svo eðlisólíkar.
306 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
D F
Krossgötur
Bryndís Björgvinsdóttir
Myndir: Svala Ragnarsdóttir
Hér eru álfasteinar, huldufólksklettar og aðrir bann-
helgir staðir um allt land, teknir til skoðunar í máli og
myndum, og hinn forni átrúnaður á nábýli mannfólks
og yfirnáttúrulegra vætta er settur í samhengi. Kross-
götur er einstök lesning um þau sýnilegu áhrif sem
þjóðtrú hefur í borg og sveit.
170 bls.
Bjartur
D
Krullað og klippt
Aldarsaga háriðna á Íslandi
Bára Baldursdóttir og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir
Bókin fjallar um störf rakara og hárgreiðslukvenna
á 20. öld. Saga háriðna er saga um nútímavæðingu
þjóðar, þróun borgarsamfélags og eflingu hreinlætis-
og tískuvitundar en þar voru frumkvöðlar í háriðnum í
fararbroddi. Bókin tilheyrir ritröðinni Safn til iðnsögu
Íslendinga.
450 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
E
Laggó!
Gamansögur af íslenskum sjómönnum
Guðjón Ingi Eiríksson
Lási kokkur „hefur vaðið fyrir ofan sig“. Ingvi Mór
heldur ekki framhjá. Oddur spekingur „gerir við“ og
Þórhallur Þorvalds er í fríi. Guðni Ölvers lætur aðra
borga bílinn, Ása í Bæ vantar tennur og Jón Berg
hrekkir sem aldrei fyrr. Guðmundur Halldórs tekur
hótunum Árna Matt illa og bræðurnir Jónas og Bóas frá
Reyðarfirði láta til sín taka. Svo fer Túlli með ungan son
sinn á sjó og heldur um það dagbók. Stráksi var ekki
efni í sjómann, en varð síðar áberandi í sinni listgrein.
Já, hver er pilturinn?
96 bls.
Bókaútgáfan Hólar
63
Fræði og bækur almenns efnis