Bókatíðindi - 01.12.2018, Qupperneq 64
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
G
Mannlíf milli húsa
Jan Gehl
Þýð.: Steinunn Stefánsdóttir
Af hverju virka sum almenningsrými og önnur ekki?
Hvert er samspilið milli útirýma og athafna fólks?
Í myndum og texta eru dregin fram margbreytileg gæði
mannlífs í borgum og byggðum og rýnt er í forsendur
út frá hönnun og skipulagi. Bókin er sígilt verk frá árinu
1971 eftir hinn þekkta danska arkitekt Jan Gehl. Löngu
tímabær íslensk útgáfa fyrir alla sem hafa áhuga á
arkitektúr, skipulagi og samskiptum milli fólks.
208 bls.
ÚRBANISTAN
D
Marteinn Lúther
úrval rita 2 – 1524-1545
Ritn.: Gunnar J. Gunnarsson, Arnfríður Guðmundsdóttir
og Gunnar Kristjánsson
Í þessu seinna bindi eru alls fjórtán rit, stór og smá og
koma mörg þeirra í fyrsta skipti fyrir almenningssjónir
á íslensku. Úrval rita I 1517–1523 kom út í október
2017. Nánar á heimasíðu Lúthersárs www.sidbot.is en
þar má m.a. finna efnisyfirlit beggja binda.
417 bls.
Skálholtsútgáfan
E
Martröð með myglusvepp
Steinn Kárason
Þrjátíu ljósmyndir.
Orsakir og afleiðingar myglusveppa.
Átakanlegar reynslusögur fólks sem glímt hefur við
eitrun vegna myglusveppa.
Fjallað um veikindi af völdum myglusveppa, bata-
leiðir og lífshætti. Einnig málaferli, lög, reglur og
fjárhagsskaða. Sérfræðingar í byggingargeiranum og
sveppafræðingur tjá sig.
96 bls.
Garðyrkjumeistarinn
G
Merki og form
Gísli B. Björnsson
Hönnun Gísla er vel kunn hér á landi. Eftir hann liggja
merki fjölda stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka
og hann því frumkvöðull á sviði graf ískrar hönnunar
og einn afkastamesti merkjahönnuður landsins. Hér
dregur hann fram margt af sínum hugmyndum og til-
raunum sem búa að baki hönnun hans. Þá fjallar hann
um merkja- og formfræði, bæði í sögulegu samhengi og
út frá eigin reynslu.
168 bls.
Háskólaútgáfan
G F C
Mið-Austurlönd
Fortíð, nútíð og framtíð
Magnús Þorkell Bernharðsson
Lesari: Sindri Freyr Steinsson
Fréttir af stríðshörmungum, kvennakúgun, mis-
skiptingu og neyð í Mið-Austurlöndum berast reglulega
og víglínurnar færast sífellt nær okkur – hryðjuverk og
straumur flóttafólks þaðan meinar okkur að loka aug-
unum fyrir ástandinu. Um leið er ljóst að ýmis vanda-
mál Mið-Austurlanda eiga rætur í tíðum og víðtækum
afskiptum Vesturlanda. Því er mikilvægt að fá í hendur
yfirlitsrit þar sem fjallað er um helstu atburði í heims-
hlutanum af fordómaleysi og yfirgripsmikilli þekkingu.
394 bls. / H 10:48 klst.
Forlagið – Mál og menning
D
Landsnefndin fyrri. Den islandske
Landkommission 1770–1771, III
Ritstj.: Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ.
Guðmundsdóttir
Skjöl Landsnefndarinnar fyrri gefa einstæða innsýn
í íslenskt samfélag um 1770, en nefndin ferðaðist um
Ísland og safnaði upplýsingum um land og þjóð. Í þessu
þriðja bindi af sex eru birt bréf til landsnefndarinnar frá
embættismönnum landsins.
796 bls.
Sögufélag, Þjóðskjalasafn Íslands og Ríkisskjalasafn
Danmerkur
D
Laughing Shall I Die
Lives and Deaths of the Great Vikings
Tom Shippey
Djörf og skemmtileg frásögn um gullaldartímabil nor-
rænna víkinga. Skyggnst er inn í sálarlíf þeirra og leitast
við að útskýra húmor og hetjulegt hugarfar sem birtist
í ótal frásögnum og kvæðum, ekki síst í þeirra hinstu
kveðjum. Prófessor Thomas Shippey er sérfræðingur
á sviði miðalda-, fantasíu- og vísindaskáldskapar og
þekktur fyrir skrif sín um J.R.R. Tolkien.
Bókin er á ensku.
368 bls.
Reaktion Books
G
Lífssögur ungs fólks
Samskipti, áhættuhegðun, styrkleikar
Sigrún Aðalbjarnardóttir
Lífssögur fimm ungmenna eru raktar frá 16 til 33
ára aldurs. Sýn þeirra á samskipti við foreldra, vini,
kærasta(ur) og eigin börn er dregin fram. Jafnframt er
fjallað um hvernig uppeldisaðferðir foreldra geta spáð
fyrir um samskiptahæfni ungmenna, líðan þeirra, trú á
eigin sjálfstjórn, vímuefnaneyslu og námsgengi jafnvel
átta ár fram í tímann frá 14 ára aldri.
260 bls.
Háskólaútgáfan
E
Lykilorð 2019
Orð Guðs fyrir hvern dag
Í Lykilorðum, sem koma út árlega, eru biblíuvers fyrir
hvern dag ársins auk sálmavers eða fleygs orðs. Upp-
bygging bókarinnar og innihald bíður upp á fjölbreytta
notkun fyrir þá sem eru tilbúnir í að leyfa orðum úr
Biblíunni að vekja sig til umhugsunar og hafa jákvæð
áhrif á líf sitt. Lykilorð henta jafnt þeim sem að vilja taka
fyrstu skrefin í því að tengja boðskap Biblíunnar við líf
sitt og þeim sem þegar eru vel kunnir því sem þar er að
finna.
144 bls.
Lífsmótun
D
Magnus Hirschfeld
Frumkvöðull í mannréttindabaráttu hinsegin fólks
Ralf Dose
Þýð.: Guðjón Ragnar Jónasson
Magnus Hirschfeld (1868–1935) var þýskur læknir og
baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks. Bókin
greinir frá ævi og störfum Hirschfelds og upphafi
baráttu hinsegin hreyfingarinnar, bæði austan hafs og
vestan. Hún veitir einnig innsýn inn í fjölbreytt mannlíf,
frjálslyndi og framsækni sem lifði góðu lífi í Þýskalandi
Weimarlýðveldisins.
136 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
64
Fræði og bækur almenns efnis