Bókatíðindi - 01.12.2018, Side 70
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D I
Um skáldskaparlistina
Aristóteles
Þýð.: Kristján Árnason
Þessi bók mun vera elsta heillega ritið sem til er um
skáldskaparfræði og er talið vera fyrirlestrar sem Ari-
stóteles flutti fyrir nemendur sína. Í samræmi við aðra
heimspeki sína greinir hann náttúrulega þróun harm-
leiksins. Í inngangi fjallar þýðandi um meginhugmyndir
verksins í samhengi við viðhorf til skáldskapar að fornu
og nýju.
115 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
D C
Hljóðbók frá Hljóðbók.is
Útkall. Þrekvirki í Djúpinu
Óttar Sveinsson
Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa í 25 ár í röð verið
eitt vinsælasta lesefni íslendinga. Þrjátíu og fjórir skip-
brotsmenn berjast upp á líf og dauða í flaki togarans
Egils rauða sem strandaði í foráttubrimi undan hrika-
legu hamrastáli Grænuhlíðar í Ísafjarðardúpi árið 1955.
Björgunarmenn hætta eigin lífi í einni stórkostlegustu
björgun aldarinnar.
Höfundur les.
224 bls. / H 6:00 klst.
Útkall ehf.
G
Vegahandbókin 45 ára afmælisútgáfa
Steindór Steindórsson og fleiri
Vegahandbókin hefur verið fastur förunautur á ferða-
lögum landsmanna síðan 1973 og er því 45 ára. Í tilefni
afmælisins fylgir nú með henni óvenju vandað ferðakort
1:500 000) að verðmæti 2.500,- og snjalltækjaútgáfa
bókarinnar.(APP) Verðmæti pakkans er um 9.000,- kr.
en við bjóðum hann á afmælisverði 4.990,- í næstu
bókabúð. Ferðumst og fræðumst.
608 bls.
Útkall ehf.
G
Vestfirðingar til sjós og lands 2. bók
Gaman og alvara að vestan
Samant.: Hallgrímur Sveinsson
Bókin hefur að geyma ýmsar frásagnir af Vestfirðingum,
lífs og liðnum, í gamni og alvöru. Margar þeirra hafa
áður sést í bókunum að vestan og víðar. En skjaldan
er góð vísa of oft kveðin eins og sagt var hér áður. Til-
gangurinn: Að vekja athygli og áhuga á Vestfjörðum
og innbyggjurum þeirra fyrr og síðar. Til þess var Vest-
firska forlagið stofnað!
112 bls.
Vestfirska forlagið
C
Viltu segja mér sögu?
með Þóru Gríms
Lesari: Þóra Grímsdóttir segir frá
Sagnaskemmtun hefur fylgt manninum frá örófi alda. Í
seinni tíð hefur greinin gengið í endurnýjun lífdaga, og
fara líflegir sagnaþulir eins og Þóra um og gleðja mann
og annan með frásagnarlist sinni. Með þeirri vakningu
sem orðið hefur er freistandi að fanga þá stemmningu
sem góður sagnaþulur skapar.
H 3:00 klst.
Hljóðbók.is
E
Tólf lífsreglur
Mótefni við glundroða
Jordan Peterson
Þýð.: Herdís Hübner og Sigurlína Davíðsdóttir
Á skömmum tíma hefur kanadíski sálfræðiprófessorinn
Jordan Peterson komist í hóp áhrifamestu fræðimanna
samtímans. Bók hans Tólf lífsreglur er ein mest selda
bók þessa árs í bæði Bandaríkjunum og á Bretlandi.
Athyglisvert er hve fólk leggur djúpt við hlustir þegar
hann fjallar um persónulega ábyrgð – en það atriði er í
raun rauði þráðurinn í bókinni.
448 bls.
Almenna bókafélagið
G
Transbarnið
Þýð.: Þorgerður Einarsdóttir o.fl.
Bókin Transbarnið er handbók fyrir aðstandendur
og fagfólk um transbörn og börn með ódæmigerða
kyntjáningu og kynvitund. Bókin byggist á rann-
sóknum, viðtölum og meðferðarvinnu og er fyrsta
sinnar tegundar á íslensku. Hún tekur á áskorunum
sem fagfólk og aðstandendur standa frammi fyrir þegar
transbörn eru annars vegar.
260 bls.
Háskólaútgáfan
G
Treasures of the National Museum of Iceland
Margrét Hallgrímsdóttir
Yfirlitsverk um sögu og verkefni Þjóðminjasafns Íslands
á ensku. Fjallað er um sýningar safnsins, muni, hús og
menningarminjar í vörslu þess og gerð grein fyrir stefnu
safnsins og áherslum. Gefið út af Þjóðminjasafni Íslands
í samstarfi við Crymogeu.
336 bls.
Crymogea
E I
Trjáklippingar
Hagnýt ráð um trjárækt og lífrænar varnir gegn
meindýrum
Steinn Kárason
180 skýringarmyndir.
Fjallað um 140 trjá- og runnategundir.
Með því að klippa tré og runna á markvissan hátt
næst betri ræktunarárangur.
Vönduð trjáklipping gefur gróðrinum meira notagildi
og meira yndis má af honum njóta.
Sérstaklega er fjallað um hverning klippa skal epla-
og perutré, kirsuberja- og plómutré, vínvið, tómata,
gúrkur, melónur og papriku.
111 bls.
Garðyrkjumeistarinn
G F
Um harðstjórn
Tuttugu lærdómar sem draga má af tuttugustu öldinni
Timothy Snyder
Þýð.: Guðmundur Andri Thorsson
Saga Evrópu á síðustu öld segir okkur að þjóðfélög geta
molnað, lýðræði getur brugðist, siðareglur brotnað og
venjulegt fólk getur framið skelfileg grimmdarverk. En
þegar grunnþáttum þjóðfélagsins er ógnað eigum við
þess kost að læra af sögunni og berjast gegn framgangi
harðstjórnar. Um harðstjórn er sjálfshjálparbók fyrir
lýðræðið – hnitmiðuð og tímabær úttekt á stöðu heims-
mála.
156 bls.
Forlagið – Mál og menning
70
Fræði og bækur almenns efnis