Bókatíðindi - 01.12.2018, Qupperneq 72
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
G
Prjónafjelagið
Leikskólaföt 2
Eva Mjöll Einarsdóttir, G. Dagbjört Guðmundsdóttir,
Heiðrún Erla Guðbjörnsdóttir og Sigurlaug Elín
Þórhallsdóttir
Myndir: Íris Dögg Einarsdóttir
Úrval prjónauppskrifta fyrir börn á leikskólaaldri.
Meðal efnis eru uppskriftir að sokkum, húfum, vett-
lingum, peysum og prjónagöllum. Fjölbreytt verkefni
fyrir byrjendur og lengra komna prjónara.
72 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
A
Lopi 38
prjónabók
Védís Jónsdóttir
Lopi 38 inniheldur 22 fjölbreyttar prjónauppskriftir
fyrir Plötulopa, Léttlopa, Álafosslopa, Einband og
Bulkylopa.
Hönnuður er Védís Jónsdóttir sem síðast hannaði
metsölubókina Lopi 29 fyrir Ístex.
67 bls.
Ístex
D
Macramé: hnútar og hengi
Ninna Stefánsdóttir
Myndir: Íris Dögg Einarsdóttir
Macramé er einföld, falleg og skemmtileg handavinna
sem allir geta lært og notað til að fegra heimili sín. Hér
er farið yfir undirstöðuhnúta og sýnt skref fyrir skref
hvernig hægt er að hnýta glæsileg vegghengi og dásam-
leg blómahengi. Að auki er farið í gegnum grunnatriði
náttúrulegrar jurtalitunar.
104 bls.
Salka / Útgáfuhúsið Verðandi
D
Prjónað af ást
Lene Holme Samsøe
Þýð.: Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir
Um 70 prjónauppskriftir fyrir börn frá 0 til 10 ára eftir
þekktan danskan prjónahönnuð. Fjölbreytt og falleg
verkefni, stór og smá; peysur, jakkar, kjólar, buxur og
fylgihlutir af ýmsu tagi.
194 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
Útivist, tómstundir
og íþróttir
G
100 Drekaskutlur
Brjóttu blað og fljúgðu af stað
Þýð.: Baldur Snær Ólafsson
Komdu þér upp eigin flugflota drekaflauga til árása á
óvininn. Þú getur valið um 100 síður sem auðvelt er að
losa úr bókinni og brjóta saman í skutlur með marg-
höfða drekum, hreistruðum sæskrímslum og mörgum
öðrum hrollvekjandi skepnum. Góð afþreying fyrir
börn frá fimm ára aldri.
108 bls.
Setberg bókaútgáfa
A
Hlý sjöl – Warm Shawles – Warme Tucher
Ágústa Jónsdóttir
Í þessari gullfallegu bók eru 26 uppskriftir af fjöl-
breyttum sjölum á íslensku, ensku og þýsku. Höfundur
er innblásinn af fegurð ísafjarðardjúps og leitast er við
að fanga hana í hönnun og munstri sjalanna og með
ljósmyndum sem prýða bókina. Höfundur er stofnandi
nýsköpunarfyrirtækisins Gústa ehf, sjölin eru prjónuð
úr hinu einstaka garni Mosa mjúkull sem er blanda af
alpakka og íslenskri ull og úr Gústu alpakka garninu.
Uppskriftirnar eru aðgengilegar, notast er við munstur-
teikningar og texta sem gera sjalaprjón að leik einum.
156 bls.
Gústa ehf.
D
Inniræktun matjurta
Zia Allaway
Þýð.: Helga Jónsdóttir
Hér er sýnt í máli og myndum hvernig hægt er að rækta
ýmislegt ætilegt innan veggja heimilisins, svo sem
grænmeti, kryddjurtir og ávexti. Einnig eru í bókinni
ótal ráð og leiðbeiningar um hvernig búa má til aðstöðu
og ílát fyrir ræktun.
222 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
72