Íslenska leiðin - 01.11.2020, Qupperneq 21
21
Hver er leiðinlegasti áfangi sem þú sast í stjórnmálafræðináminu?
Ég lærði ekki stjórnmálafræði við HÍ.
Ef þú mættir búa til og kenna nýjan áfanga, um hvað væri hann?
Femínísk alþjóðasamskipti.
Þú mátt velja einn kennara úr deildinni til að vera með á eyðieyju,
hvern myndir þú velja og af hverju?
Huldu eða Gyðu, þær eru báðar svo sjúklega fyndnar.
Hvað gerir þú til að slaka á?
Besta slökunin mín hversdagslega er í ræktinni, en svo reyni ég að ferðast til að
komast í burtu frá hversdagsleikanum.
Hvert er þitt „guilty pleasure“ sjónvarpsefni?
Allra tíma, þá er það Veep, ekkert sérstakt í gangi núna.
Te eða kaffi?
Kaffi, alla daga.
Hver er uppáhalds kennslustofan þín?
Hún er ekki fundin enn – Árnagarður 422 uppfyllir margt af því sem mér finnst
gott við kennslustofu en hún er ekki fullkomin.
Skemmtileg staðreynd sem fáir vita um þig?
Ég hélt ég væri opin bók, en það er greinilega ekki nógu vel þekkt staðreynd að
ég lærði ekki stjórnmálafræði!
Silja Bára
Ómarsdóttir
Eva Heiða
Önnudóttir
Hver er leiðinlegasti áfangi sem þú sast í stjórnmálafræðináminu?
Það er svo langt síðan að ég var í stjórnmálafræðinni. Ég hafði gaman af flestum
áföngum í stjórnmálafræðinni, meira að segja aðferðafræðinni. En þeir áfan-
gar sem ég hafði kannski síst gaman af voru Opinber stjórnsýsla og Opinber
stefnumótun, enda frestaði ég því að taka þá áfanga fram á síðasta árið mitt í
stjórnmálafræðinni.
Ef þú mættir búa til og kenna nýjan áfanga, um hvað væri hann?
Það væri áfangi sem myndi einblína á það hvernig kjörnir fulltrúar og fram-
bjóðendur líta á sitt hlutverk gagnvart sínum kjósendum, hvernig þeir sinna sínu
starfi sem kjörnir fulltrúar og hvað hefur áhrif á ákvarðanatöku þeirra og frama í
stjórnmálum.
Þú mátt velja einn kennara úr deildinni til að vera með á eyðieyju,
hvern myndir þú velja og af hverju?
Þetta er erfitt val og margir sem koma til greina. En ef ég myndi velja einn ken-
nara, þá myndi ég velja Evu Marín Hlynsdóttur, vegna þess að við erum búnar að
þekkjast síðan við vorum saman í grunnnámi í stjórnmálafræði og ég treysti hen-
ni til að ganga í þá hluti sem þyrfti að gera til að halda okkur á lífi í eyðieyjunni.