Íslenska leiðin - 01.11.2020, Page 30

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Page 30
30 Nichole segist hafa reynt sitt besta til að vera fulltrúi innflytjenda í stjórnmálum og koma þeirra sjónarhorni á framfæri. „Ég spurði alltaf um rökin sem tilheyra þeirra hag og reyndi að gæta hagsmuna innflytjenda í öllu sem ég gerði en fór ekkert fram með þá yfirlýsingu að ég var talsmaður þeirra því mér var aldrei gefið umboð til að gera það. Nichole segist hafa áttað sig á því að hún gæti ekki verið rödd allra en þess í stað gat hún deilt reynslu annarra og reynt að tryggja að ekki sé gengið fram hjá neinum. Telurðu það vera erfitt eða auðvelt fyrir innflytjendur að byrja að taka þátt í stjórnmálum? Pawel telur að það geti verið nokkuð erfitt. „Það er margt sem við gerum sem byggist á félagslegum eða fjöl- skyldulegum netum sem við kannski sjáum ekki svo glöggt. Margir sem taka þátt í pólitík gera það í gegnum einhvern sem þeir þekkja nú þegar.“ Pawel bendir á að innflytjendur eru ekki jafn sýnilegir í stjórnmálum miðað við fjölda þeir- ra í samfélaginu. „Pólverjar sjálfir eru tvöfalt fleiri en Vest- firðingar eða íbúar í Norð-Vesturkjördæmi, ef við værum að hugsa það þannig þá ættu þeir að vera með níu þing- menn sem þeir eru ekki. Eitthvað af því stafar kannski af því að það tekur tíma fyrir fólk að ná þannig um í samfélaginu að það fái þetta á radarinn að þetta sé eitthvað sem það getur gert. Oft eru menn að taka fyrstu árin í að koma sér fyrir og vita hvar allt er.“ Sabine telur fyrstu skrefin reynast mörgum erfið en segist upplifa að innflytjendum sé vel tekið innan stjórn- málanna. „Þegar maður hefur ekki tengslanetið og veit ekki hvernig reglurnar eru og hvernig þetta virkar og svona, þá er svo miklu erfiðara að taka þetta fyrsta skref, en á hinn bóginn þegar maður tekur skrefið, þá eru tækifæri þar og ég hef ekki upplifað þetta þannig að það er verið að útiloka innflytjendur sérstaklega, þvert á móti. Nichole telur einnig að það sé erfitt fyrir innflytjen- dur að byrja að taka þátt í stjórnmálum. „Þú sérð flokka og hvernig þeir myndast, hvernig listinn myndast, þetta eru mjög mikið kunningjar eða félagar og svoleiðis.“ Hún nefnir sem dæmi að hennar tækifæri í stjórnmálum hafi komið eftir að hún kynntist öðrum stjórnmálamönnum. „Þegar ég er boðin inn, þetta er vegna þess að ég var farin að kynnast þessu fólki. Það var ekki að enginn af þeim þekkti mig eða voru ekki tilbúin að þekkja mig, þau voru búin að kynnast mér eitthvað.“ Heldur þú að það að vera innflytjandi gefi þér einhverja aðra sýn á málefni en hjá öðrum Íslendingum? Pawel segir að sennilega byggi eitthvað á persónule- gri reynslu þar sem öll fjölskyldan gat flutt saman og bendir á að einstaklingur utan EES-svæðisins geti það ekki í dag. „Ég er með þessa nálgun á innflytjenda- og útlendingamál að ég vil sjá grunnkerfið sem er auðvitað fyrirkomulag, ég vil að einhver sem situr á Grænhöfðaeyjum og finnst Ísland heillandi staður til að flytja til hafi góða löglega möguleika til þess, að það þurfi ekki að nota leiðirnar sem eru hælisleit og mannúðarglugginn sem er settur inn sem neyðarúr- ræði, að það þurfi ekki að vera leiðin inn í landið. Ef fólk vill koma þá eigum við að vera sæmilega opin fyrir því, leyfa fólki að vinna, fá varanlegt dvalarleyfi og bara allir sáttir.“ Sabine segist telja sig hafa annars konar sýn og reyns- lu verandi innflytjandi t.d. í umhverfismálum. „Ég er Þjóðverji, þú þarft ekki að útskýra fyrir mér hvernig maður á að flok- ka rusl, ég lærði það fyrir fjörutíu árum síðan þar.“ „Stun- dum gætu innflytjendur jafnvel verið með meiri þekkingu og reynslu í sumum málaflokkum, ég hef búið í stórborg í Evrópu, ég kem með þessa þekkingu og reynslu af almen- ningssamgöngum hingað líka til dæmis.“ Nichole telur sig einnig hafa töluvert öðruvísi sjónar- horn á hlutina en aðrir Íslendingar. „Að vera innflytjandi he- fur gefið mér allt aðra sýn á lífið. Ég viðurkenni það þegar ég kom til Íslands, ég gekk hérna í algera forréttindastöðu. Ég var hvít 27 ára kona frá Bandaríkjunum. Ég hélt að allar dyr væru mér opnar. Þær voru það ekki og hlutir sem ég upplifði, ég var að mörgu leyti blind fyrir, þó að ég taldi mig vera bara pínu svona réttsýn og fordómalaus manneskja, ég hafði ekki hugmynd um hvað aðrir þurftu að ganga í gegnum.“ „Ég þurfti virkilega að læra hvað réttindi eru og skyldur sem ég bara tók sem sjálfsögðum hlutum alla mína ævi.“ Er mikilvægt að innflytjendur taki virkan þátt í stjórnmálum? Pawel segist telja að ýmis tækifæri myndu glatast ef innflytjendur tækju ekki þátt í stjórnmálum. „En fólk þarf auðvitað líka að koma fram með eitthvað sem það trúir á. Það er kannski vont að hafa innflytjendur innflytjendan- na vegna en að jafnaði væri ég glaðari yfir því að hlutfall kjörinna fulltrúa myndi endurspegla betur samsetningu samfélagsins, fólk fer að tala aðeins öðruvísi og haga sér aðeins öðruvísi. En það má ekki búast við því að allir sem koma inn í pólitík og eru innflytjendur séu einhvern veginn sammála um allt enda velur fólk sér ólíka flokka.“ Sabine telur virkni innflytjenda einnig mikilvæga. „Þet- ta er eiginlega svo stór hópur í samfélaginu og vaxandi og fjölbreytni er náttúrulega svo ótrúlega mikilvæg fyrir jákvæða þróun í samfélaginu.“ Þá finnst henni mikilvægt að innflytjendur taki þátt í stefnumótun um öll málefni og innflytjendagleraugun séu innleidd í öllum málaflokkum en ekki eingöngu í málefnum innflytjenda. Nichole segir þátttöku innflytjenda vera afar mikilvæ- ga einkum af tveimur ástæðum. Annars vegar vegna þess að innflytjendur eru skattgreiðendur og hins vegar veg- na þess að þeir hafa „reynslu og sýn sem skiptir máli í því samfélagi sem þau búa í.“ Henni finnst stjórnvöld ekki nógu virk í að fá fólk af erlendum uppruna í stefnumótun og telur raddir þess fólks ekki heyrast nógu vel innan stjórnmálan- na. „Samfélagið er að þróast og breytast og þessi sýn þarf að vera með í því að móta þessi kerfi og hvernig fjármagn dreifist og hvaða gildi okkar land stendur fyrir.“

x

Íslenska leiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.