Íslenska leiðin - 01.11.2020, Síða 42

Íslenska leiðin - 01.11.2020, Síða 42
42 Rán Birgisdóttir Þau vinna, við vinnum Í umræðunni um málefni flóttafólks takast á þau sem telja að Ísland ætti að taka við fleira flóttafólki og þau sem telja að taka ætti við færri. Rök þeirra sem eru á móti fjölgun flót- tafólks byggja oft á hugmyndum um að hún hafi neikvæð efnahagsleg áhrif. Þvert á þau rök hafa fjölmargar rannsók- nir sýnt fram á að koma flóttafólks hafi jákvæðar afleiðin- gar á efnahag dvalarlandsins. Þrátt fyrir þessar upplýsingar er afstaða íslenska ríkisins óljós og reynist mörgu flóttafólki erfitt að fóta sig í íslensku samfélagi og komast inn á vin- numarkaðinn. En þá kemur að spurningunni: af hverju hafa íslensk stjórnvöld ekki auðveldað flóttafólki að komast inn á vinnumarkaðinn ef það hefur þessi jákvæðu áhrif á efna- hagslífið? Þegar flóttafólk kemur til Íslands og reynir að fóta sig í sam- félaginu mætir það ýmsum hindrunum. Ein stærsta ásko- runin er eflaust ferlið sem flóttafólk þarf að ganga í geg- num til að fá atvinnuleyfi. Útlendingastofnun (ÚTL), sem sér um það ferli, fylgir mjög strangri og flókinni reglugerð. Flest flóttafólk þarf að bíða í þrjá mánuði áður en það geta sótt um atvinnuleyfi en þá þarf viðkomandi að vera fluttur úr búsetuúrræðum ÚTL. Til að geta flutt frá búsetuúrræði þarf viðkomandi oftast að vera með örugga framfærslu. Á þes- su stigi má fólk hins vegar ekki vinna og því nær ómögulegt að uppfylla þessi skilyrði. Þegar fólk uppfyllir loks skilyrðin tekur við flókið ferli og oftast langur biðtími og algengt er að fólki sé vísað úr landi áður en það ferli klárast. Rannsóknir um allan heim sýna fram á jákvæð áhrif flót- tafólks á vinnumarkað og hagkerfi dvalarlandsins. Rannsók- nir benda meðal annars til þess að það að veita flóttafólki atvinnuleyfi skili ríkinu sem þau dvelja í meiri pening í kas- sann í gegnum skattgreiðslur, hækki verga þjóðarframleiðs- lu (VÞF) sem og að draga úr atvinnuleysi (sjá t.d. Maxmen, Migrants and refugees are good for economies, 2019). Sam- kvæmt rannsóknum William Evans frá Háskólanum í Not- re Dame, sem gerð var í Bandaríkjunum, má sjá að aðeins átta árum eftir komu flóttafólks var ábati þátttöku þeirra á vinnumarkaði orðinn meiri en kostnaðurinn sem fylgdi þeirri aðstoð og þeim bótum sem þau fengu frá ríkinu við ko- muna. Sú þróun takmarkast ekki við Bandaríkin og má sjá merki um svipaða þróun um allan heim. Því mætti segja að það sé ákveðin fjárfesting fólgin í því að aðstoða flóttafólk við að komast inn á vinnumarkaðinn. En hvers vegna beita stjórnvöld sér þá ekki fyrir breytingum á þessum reglugerðum fyrst það liggur ljóst fyrir að íslenskt samfélag og ríkið sjálft gætu hagnast á því? Vandamálið liggur ef til vill í að hvatar stjórnmálamanna beinast oft að skammtímaáformum og lausnum. Kostnaðurinn sem fylgir breytingum á ferlinu þegar litið er til skamms tíma, gæti haft neikvæð áhrif á ímynd stjórnmálamannsins sem talaði fyrir þeim breytingum, áður en að langtímaáhrifin koma í ljós. Þess vegna er tilhneigingin sú að líta fram hjá langtímaáhri- funum. Í staðinn er athyglinni beint að skammtímalausnum svo breytingarnar kosti þá ekki endurkjörið. Pólitískir hags- munir stjórnmálamanna kunna þannig að vega meira en lífsgæði og öryggi flóttafólks jafnvel þótt það sé á kostnað samfélagsins. Ég hvet alla til þess að kynna sér þessi mál betur og það væri gott ef íslenskir stjórnmálamenn myndu ná að leg- gja pólitíska hagsmuni sína til hliðar, vinna í þágu sam- félagsins og kalla eftir breytingum á málaflokknum. Ef ekki af mannúðarástæðum, þá af efnahagslegum.

x

Íslenska leiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.