Íslenska leiðin - 01.11.2020, Qupperneq 49
49
Inger Erla Thomsen
Skiptinám
í Kaþólska
Háskólanum
í Leuven
SK
IP
TI
N
Á
M
Tíminn minn í Belgíu var ekki langur en
ég varð strax ástfangin af þessum „lit-
la“ bæ sem ég á enn þá bágt með að
trúa að ég hafi þurft að flytja frá eftir
aðeins 5 vikna dvöl. Upphaflega æt-
laði ég að vera þar eitt misseri en þar
sem aðstæður breyttust þá verð ég í
skiptinámi í Leuven þar til í janúar 2021.
Leuven er gamall bær norðaustan af
Brussel, í hollenskumælandi hluta Bel-
gíu. Í Leuven ertu annað hvort háskóla-
nemi eða vinnur í Stellu Artois brugg-
húsinu. Þar kvartaði fólk sífellt undan
rokinu og köldu veðri á meðan ég lab-
baði í og úr skóla á stuttermabolnum
en svitnaði samt á bakinu.
Skólinn minn heitir KU Leuven eða Kat-
holieke Universiteit Leuven. KU Leuven
var stofnaður árið 1425, þegar við Íslen-
dingar vorum ennþá að moka flórinn
í skinnskóm. Í skólanum er fólk alls
staðar að, á öllum aldri og í alls konar
fræðum (mörgum sem ég hafði ekki
einu sinni hugmynd um að væru til).
Þar er ECTS einingakerfi eins og heima.
Helsti munurinn er hins vegar sá að allir
áfangarnir sem ég er í eru 3-6 einingar,
ég varð þess vegna að taka sjö áfanga
til þess að fá þær 30 einingar sem ég
þurfti á síðasta misseri. Mér finnst það
samt frábært því að áfangarnir sem
ég er í eru eins og einn undirkafli í fagi
í Stjórnmálafræðideild HÍ. Dæmi um
áfanga sem ég tók eru Labour mar-
kets, regulations and developments
in Europe (Vinnumarkaðir, reglugerðir
og þróun í Evrópu), Policy analysis
(Stefnugreining) og Digital Marketing
(sá áfangi er með áherslu á herferðir
fyrir félagasamtök eða stjórnmála-
flokka). Áfangarnir eru allir kenndir á
ensku og einkunnagjöf er frá 1-20, eins
og víða er í mið- og suður Evrópu. KU
Leuven er frekar harður skóli hvað ein-
kunnagjöf varðar en það er eiginlega
engin leið að fá yfir 15 í einkunn. Á sama
tíma þá fellur þú ef þú ert með undir 10.
Öll lokaprófin voru munnleg í vor, sum
þeirra áttu að vera munnleg frá upp-
hafi en önnur voru færð yfir á munnlegt
form fyrir þau sem höfðu farið aftur til
síns heima vegna veirunnar.
Það er tekið ofboðslega vel á móti skip-
tinemum í Leuven, Belgar eru með allt