Íslenska leiðin - 01.05.2022, Side 4

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Side 4
Ávarp Ritstjóra Það er frost á götunum en vor í hjarta mínu því loksins er Íslenska Leiðin komin út. Ég er svo ánægður að geta loksins deilt blómi blóðs, svita og tára okkar í ritstjórn með ykkur öllum. Vel unnið verk ef þú spyrð mig! Vil ég þakka öllum þeim sem komið hafa að útgáfu blaðsins. Bæði vil ég auðvitað þakka yndislegu ritstjórninni minni sem öll var ómissandi fyrir tilurð blaðsins en einnig þeim sem sentu inn efni, skrifuðu greinar og mættu á alla viðburði félagsins yfir árið, sem munu vonandi varðveitast að einhverju leyti til ókominna tíma í þessu blaði. Ykkar framlag var ómissandi líka. Hugmyndin bakvið Íslensku Leiðina í ár er einmitt sú að ná skjáskoti af þessum einkennilegu tímum og skjáskoti af því sem við sáum, gerðum og sigruðum saman sem nemendafélag. Einnig hýsir blaðið hefðbundnar greinar og gamanefni frá og fyrir nemendur eins og því ber. Því má segja að árbók og tímarit koma í raun saman í þessu riti árbók og tímarit svolítið saman í þessu riti. Íslenska Leiðin er fullkomin leið fyrir okkur til að sinna verkefni annálshöfunda líkt og tímarit hafa oft á tímum verið. Ég man sterklega eftir því að liggja yfir gömlum árbókum í gamla menntaskólanum mínum í þeirri forvitni að vita hvernig fólk var sem var í mínum sporum fyrir öllum þessum árum og hvernig það lifði, hvað það var að pæla. Gömul tímarit eru okkar gluggar inn í fortíðina og þetta rit skal vera samræða okkar við framtíðina. Kæru samnemendur, komum og spjöllum saman. Kjartan Ragnarsson, ritstjóri Politica Kæru samnemendur Dagur Kárason Elínrós Árnadóttir Halldóra Kolka Prebensdóttir Nanna Guðrún Sigurðardóttir Þórhildur Kristbjörnsdóttir Baldvin Pálsson 20 21-20 22 R it st jó rn Ís le ns ku L ei ða ri nn ar

x

Íslenska leiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.