Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 7

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 7
Stjórn Politica 2021-2022 Kjartan Ragnarsson, Jörundur Guðni Sigurbjörnsson, Birta Björnsdóttir Kjerúlf, Ýr Aimée Gautadóttir Presburg, Sindri Freyr Ásgeirsson, Þórhildur Davíðsdóttir, Jón Ingvi Ingimundarson, Eva Björg Sigurjónsdóttir, Sigrún Hrönn Bolladóttir Ávarp Forseta Kæru félagsmenn Sindri Freyr Ásgeirsson, forseti Politica Það er mér mikill heiður að fá að ávarpa lesendur Íslensku leiðarinnar sem forseti Politica. Ekki tókst að gefa út blaðið á síðasta ári sökum heimsfaraldurs sem leikur okkur enn grátt. Þau erfiði sem við höfum gengið í gegnum gerir mig þakklátari fyrir þá góðu vinnu sem nemendafélag okkar stendur fyrir og er ég óendanlega stoltur af því fólki sem gaf sína vinnu í þágu félagsins. Bjartari tímar eru þó framundan og nú berast þær fregnir að faraldurinum fari að ljúka og geti nám og félagslífið farið aftur í eðlilegt horf. Þrátt fyrir óvissu og takmarkanir hefur Politica verið eitt af virkustu nemendafélögunum við Háskóla Íslands, helst má nefna Alþingiskosningarnar við upphaf skólaárs þegar nemendafélagið ásamt stúdentaráði stóðu fyrir tveimur pallborðum og kosningavöku sem rataði í fréttirnar. Lagt var mikið upp úr því að endurvekja Hagstjórnardaginn sem gekk vel en dagurinn endaði með brotinni styttu af Karl Marx. Því mætum við tvíefld til leiks að ári. Það var mér persónulega mikilvægt að efla samstarf milli deilda félagsvísindasviðs og haldið var eitt stórt halloween party með félagsráðgjöfinni, félagsfræðinni, mannfræðinni og þjóðfræðinni sem átti sterka skírskotun í Samfélagið sem var sameiginlegt nemendafélag þessara nemenda fyrir aldamót. Nú á nýju ári þegar framtíðin virðist bjartari stefnum við að því að halda árshátíð, Hanaslaginn og Sigmundinn sem minnir okkur á þá ríku og sterku hefðir sem lifa innan okkar deildar. Ég vill óska þeim sem stefna að útskrift í vor sérstaklega til hamingju og óska ykkur góðs gengis með það sem þið takið að ykkur í framtíðinni. Ég vona að sú aðlögunarhæfni sem þið hafið tamið ykkur í heimsfaraldrinum verði gott veganesti inn í framtíðinna. Við hin sem sitjum eftir skulum njóta þess tíma sem við eigum eftir af náminu og styðja við okkar dýrmæta nemendafélag svo það megi blómstra. Lengi lifi Politica!

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.