Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 17

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Blaðsíða 17
17ÍSLENSKA LEIÐIN TÍMARIT STJÓRNMÁLAFRÆÐINEMA ÍSLENSKA LEIÐIN Egill Hermannsson, stjórnmálafræðinemi & varaformaður Ungra umhverfissinna er aðeins 20% af heildarlosun Íslands dag. Stjórnvöld hafa nefnilega ekki losunarflokkana „ETS (losun sem fellur undir viðskiptakerfi ESB)” og „landnotkun” með í reikninginn í 55% markmiði sínu. Markmið ríkisstjórnarinnar er að draga saman um 55% miðað við 2005 á losun sem fellur undir beina ábyrgð Íslands en það samsvarar samdrætti um 1.469þ. tonn af CO2 íg. fyrir árið 2030. Þó að losunin minnki um þetta magn, þá samsvarar það aðeins 13% af heildarlosun Íslands (14.214þ. tonn CO2 íg.) vegna þess að flokkarnir landnotkun og ETS eru ekki teknir með í reikninginn. Að ræða um „55% samdrátt” getur því verið villandi þar sem einungis er um að ræða einn losunarflokk, og mun markmiðið því eitt og sér einungis valda 13% samdrætti af allri heildarlosun Íslands. Því er ljóst að taka þarf til hendinni í öllum losunarflokkum. Þörf er á tölusettum markmiðum hvað varðar samdrátt í losunarflokkunum ETS og landnotkun, eitthvað sem að stjórnvöld sem segjast ætla að „setja loftslagsmálin í forgang” ættu að sjá hag sinn í að framkvæma. Gakktu í Unga umhverfissinna á þrjátíu sekúndum á umhverfissinnar.is/skraning. Við ætlum á næstu vikum að vekja athygli á þessu og koma upplýsingum til almennings. Heildarlosun Íslands 2019

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.