Íslenska leiðin - 01.05.2022, Side 34

Íslenska leiðin - 01.05.2022, Side 34
34 ÍSLENSKA LEIÐIN 20. ÁRGANGUR 2022 ÍSLENSKA LEIÐIN viðtöl við Stjórnmálafólk Hvers vegna valdir þú þennan flokk? Fyrst og fremst vegna þess að ég er sósíalisti og fannst flokkurinn vera sá eini sem er að ráðast á rót vandans. Kapítalismi er rót vanda flestra landa í dag þar sem þessi fasta þörf fyrir að hagnast er ráðandi. Þrátt fyrir að ég sé sammála mörgum vinstri flokkum hér á landi þegar kemur að þeim ýmsu málum sem okkur varða, þá finnst mér þeir ekki vera að gera það sem sósíalistaflokkurinn er að, og er til í að gera til að breyta hlutunum. Ég hugsa við séum flest að hugsa sömu hlutina; Samfylkingin og Píratar til dæmis. Sem ung manneskja í stjórnmálum, hvernig er komið fram við þig? Er komið öðruvísi fram við þig miðað við eldri kollega þína? Í sumar var ég mikið á ungmennaviðburðum og auðvitað var manni alltaf tekið vel þar eins og þegar ég kom í stúdentakjallarann á pallborðsumræður fyrr í haust. Í flokksstarfseminni er tekið mark á mér rétt eins og öllum öðrum en kannski er það bara vegna þess að ég er umkringdur mjög vingjarnlegu fólki. Á Alþingi eru vissulega margir í eldri kantinum sem eiga það kannski til að hlusta frekar á skoðanir jafnaldra sinna. Langar þig aftur í framboð næst? Já klárlega, mér fannst þetta mjög gaman en á sama tíma smá svekkjandi að geta ekki tekið jafn mikinn þátt og ég vildi. Það er bara vegna þess að ég geri miklar kröfur til mín í öllu sem ég geri. Ungir sósíalistar eru „up and coming!“ Hvar sérðu þig eftir 10 ár? Vonandi í stjórnmálum hvernig sem það væri, bara taka virkan þátt í umræðu stjórnmála landsins þó það væri ekkert endilega á Alþingi. Bara gera eitthvað skemmtilegt! Draumastarfið væri að geta haft áhrif á samfélagið og kynna fólki fyrir nýjum hugmyndum. Hvað er þitt helsta afrek eða stoltasta stund? Ég er mjög stoltur af því hvernig mér gekk í skóla og hafa farið í framboð. Kannski ekki stök stund en ég er mjög ánægður með það hvernig ég hef verið að reyna gera mitt besta og leggja mig fram í öllu sem ég geri. Gaman að uppskera því sem maður sáir og ná árangri yfir nokkurra ára skeið. Hvaða skilaboðum viltu koma til stjórnmála- fræðinema? Hlutir í dag, eru ekki eins og þeir voru og þeir verða ekki alltaf eins og þeir eru. Ef þú ert íhaldssamur áttu alltaf eftir að tapa, ef við skoðum allar réttindabaráttur og hvert þær eru komnar í dag, þá er auðvelt að sjá hvað ég á við. Hvað gerir þú fyrir utan stjórnmálin? Ég er aðallega að vinna sem tölvunarfræðingur og ég starfa hjá Kóða ehf. sem býr til Kelduna sem mér finnst auðvitað mjög fyndið vegna þess að ég er klárlega lang mest vinstri-sinnaður á vinnustaðnum. Síðan finnst mér líka gaman að hitta vini mína og djamma eins og flestir á okkar aldri en ég væri klárlega til í að fara finna mér fleiri áhugamál og er nú með nokkur í huga. Atli Gíslason, 22 ára, Sósíalistaflokkurinn.

x

Íslenska leiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.