Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 6
Elst var Guðrún Margrét, fœdd 16. maí 1920, dáin 3. desember 1963.
Hún bjó á Hofsvöllum og siðar í Litluhlíó í Vesturdal í Skagafirði. Fyrri
maður hennar var Jón Jónsson bóndi á Hofsvöllum en seinni ntaður Ólaf-
ur Guðmundsson í Litluhlíð. Þeir eru báóir látnir. Nœstur í röðinni var Jó-
hann, sögumaóur okkar að þessu sinni, fæddur 1924. Þriðja var Anna Sig-
urbjörg, fœdd 22. júní 1926, dáin 15. september 1975. Maður hennar var
Hartmann Jóhannesson. Þau bjuggu á Skagaströnd, síðar í Reykjavík.
Fjórða var Þorgerður, fœdd 9. desember 1927. Fyrri maóur hennar var Jón-
atan Jónsson frá Hofsvöllum. Þau bjuggu á Sauðárkróki. Seinni maður
hennar var Björgvin Jónsson og bjuggu þau á Skagaströnd en síðar á Ak-
ureyri. Þeir eru báðir látnir og býr Þorgerður nú á Akureyri. Fimmta var
Jón, fœddur 6. apríl 1931, lengi bóndi á Óslandi í Óslandshlíð, kvœntur
Þóru Jónsdóttur frá Óslandi. Þau búa nú á Sauðárkróki. Sjötta barnið var
Oddur, fœddur 16. júní 1932, dáinn 28. september sama ár. Sjöunda var
Oddrún Sigurlaug, fœdd 10. febrúar 1936, dáin 8. ágúst 2001. Maður
hennar var Sigurberg Hraunar Daníelsson. Þau bjuggu í Kópavogi. Átt-
unda ogyngsta baritið var Siguróur Helgi, fœddur 27. apríl 1941, prestur á
Reykhólum, Eskifirði og loks í Hafnarfirði. Kona hans er Brynhildur Sig-
urðardóttir úr Reykjavík.
Jóhann Guðmundsson, betur þekkt-
ur sem Jói í Stapa, er mörgum kunnur.
Hann hefur starfað að húsasmíðum
víða um land og kynnst fjölda fólks.
Hann hefur þann góða eiginleika að
vilja gera gott úr öllu og hans ljúf-
mannlega framkoma hefur hvarvetna
aflað honum vinfengis samferða-
manna. A síðari áratugum hefur hann
þó orðið einna þekktastur fyrir vísur
sínar og kvæðagerð. Bæði er hann
fljótur til og hagur á dýra hætti.
Þótt æviárin séu orðin 78 er Jói enn
réttur í baki og kvikur í hreyfingum.
Hann er mikið náttúrubam sem nýtur
útiveru og samvista við hross sín og
ferðafélaga. Hann sinnir enn smíðum
og lagfæringum fyrir vini sína og
kunningja, sem eru fjölmargir, enda
segir hann að sig muni ekkert um að
vinna 10 tíma á dag ef svo ber undir.
Jói féllst á að segja dálítið ffá lífs-
hlaupi sínu og fer ffásögn hans hans
hér á eftir.
Foreldrar mínir bjuggu aðeins árið í
Grundargerði og ég var ekki nema
hálfs árs þegar þau fluttust þaðan ffam
í Sólheimagerði til ársins, en þaðan út
á Sauðárkrók vorið 1925 og þar fór ég
fyrst að muna eftir mér. Þau fluttu í
gamalt og lélegt hús í brekkunni upp
af Eyrinni þar sem Gísli lági bjó
seinna. Víðar voru þau en þama man
ég fyrst eftir mér.
Frá Sauðárkróki fluttu þau til Siglu-
fjarðar er ég var 4 eða 5 ára. Ég man
Stapi í Tungusveit ásamt Stapavatni.
vel eftir mér á Siglufirði og þegar ég
kom þangað fyrir stuttu síðan rifjuðust
upp fyrir mér ýmis gömul ömefni.
Þama vann pabbi í síldarverksmiðjum
ríkisins en mamma var alltaf heima og
hafði í nógu að snúast þar. Á Siglu-
firði vom þau til vorsins 1933, þegar
ég var 9 ára, að þau fara upp í Skeið í
Fljótum.
Ég man vel eftir mér á Skeiði og
Jói með blómvendi í brúðkaupi Inga
Heiðmars vinar síns og Hörpu. Það
vantaði blómavasa um stund og Jói
var settur í hlutverkið.
246 Heima er bezt