Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 29
Bjarnarey út af Kollumúla. Þar segir frá hungurvist manna fyrir þrem ald- arfjórðungum. Vitinn við Kálfshamarsvík stendur á klettahöfða ífögru umhverfi stuðla- bergs. Hér er því um 104 vita að ræða sem Siglingastofnun íslands á og rekur, er þjóna almennri skipaumferð hringinn í kringum landið. Eins og að líkum lætur hefur vitun- um víða verið valinn staður á af- skekktum stöðum frá ystu nesjum og eyjum umhverfis landið, þar sem siglingaleið framundan getur verið varasöm. Vitarnir voru reyndar for- senda þess að strandferðir við ísland kæmust í eðlilegt horf áður en ratsjá og dýptarmælir komu til sögunnar um miðja síðustu öld. Sá, sem festir þessar línur á blað, hafði því nokkur kynni af þessari þjónustu meðan hann var sjómaður um borð í strandferöaskipi. Stundum minnist ég slíkra stunda við brúar- gluggann þegar ég horfði út yfir haf- llötinn framundan skipinu, hvernig tungl, stjörnur og norðurljós, brugðu upp stálgrárri kynjabirtu á umhverf- ið, en til landsins var kolsvört ströndin, stundum með hvítum depl- um hér og Itvar; sveitabæir á stangli. Reylcjanesvitinn og bústaður vitavarðar Þess á milli leiftruðu skærar Ijóskeil- ur vitanna á þessum ystu leiðum, ýmist rauð, græn eða hvít, söxuðu þau niður myrkrið við að vísa okkur leið framhjá boðum og skerjunt. I sumum þessara vita eða í ná- grenni þeirra, vissum við að bjó fólk, afskekkt og einangrað. Nægir þar að nefna Svalvoga, Galtarvita, Horn- bjargsvita, Sauðanes- og Siglunes- vita, Skoruvík og Dalatanga. Þar sem fólkið á þessum stöðum sinnti jafnframt veðurathugunum voru þeir landsmönnum kunnir úr veðurfregnum útvarpsins um langa hríð og sumir þeirra reyndar ennþá. Heima er bezt 269

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.