Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 13
hafði ég hjálp en oft var ég einn við þetta. Svo kom Ámi ísleifsson í Þjórsár- holti að máli við mig og bað mig að byggja fyrir sig. Ég sagði honum að ég hefði ekki tíma þetta sumar en ég skyldi hugsa til hans næsta sumar og það varð úr. Þá byggði ég fyrir hann hesthús og hlöðu og síðan fæ ég að hafa þar hesta mína hjá honum. Ég er nú með ein 7 hross, reiðhesta og 3 trippi á tamningaraldri. Þama er ég oft seinni part vetrar og hirði hestana. Ami vinnur niður á Flúðum og kemur heim seinni partinn og þá forum við oft á hestbak á kvöldin eftir seinni gjöfina. Þetta er rólegur og góður tími. Víðar hef ég verið á Suðurlandinu við byggingar. Má nefna Minniborg í Grímsnesi og veturinn 2000-2001 var ég austur á Hestheimum hjá Gísla Sveinssyni frá Varmalæk. Þetta er gamli Sumarliðabær og Gísli keypti þriðjung jarðarinnar og skýrði upp og kallar Hestheima. Konan hans er ffá Flugumýrarhvammi. Þama hafa þau reist íbúðarhús og reiðhöll og breyttu gömlum fjárhúsum í hesthús, allt í einum hvelli. Þama hafa þau hrossabú og gestamóttöku. Þetta er hið eina sem ég hef unnið austan við Þjórsá. Talsvert er ég búinn að vera á Flúð- um hjá Jóni Hermannssyni. Það er sá staður sem ég hef kunnað einna best við mig á, á Suðurlandi. Hestamennska Hestamennskan hefur alltaf verið snar þáttur í mínu lífi. Fyrsta hestinn eignaðist ég 16 ára gamall. Það var vorið sem við fómm í Hof. Tvævett trippi hafði verið að þvælast heim í harðindum frá Símoni í Goðdölum. Þegar hann kom til að sækja það vildi hann selja mér það því að ég hafði verið búinn að hjúkra því. Ég fékk það á 140 krónur sem var mjög vægt verð og mátti borga á tveimur árum. Þetta var hryssa, indælis reiðhross, eitthvert gangrýmsta hross sem ég hef komið á bak og út af henni eru öll mín hross komin. Hún hafði hins vegar ekki þá fegurð sem hross hafa í dag. Eftir að ég fór frá Stapa hef ég alltaf átt hross og hef haft mikla ánægju af samvistum við hesta. Þegar ég fluttist — Tögl í landi Skeiðháholts á Skeiðum, sumarbústaður Inga Heiðmars Jónssonar og Hörpu Ólafsdóttur, sem Jói byggði fyrir vini sína árið 1993. suður fargaði ég flestum mínum hrossum og m.a. voru tveir folar sem ég lét Jóhann son minn fá, var rétt að byija að temja þá og aðeins búinn að fara á bak. Svo þegar ég sá að ég mundi verða syðra allan veturinn tók ég þessa fola suður til mín og fór að temja. Fékk ég fyrst pláss fyrir þá suð- ur í Haftiarfirði. Veturinn eftir keypti ég hús í Kópavogi af Hólmari Pálssyni á Minniborg og þess vegna lenti ég síðar í að vinna fyrir hann. Mína fyrstu fjallaferð fór ég sumar- ið 1987. Þá reið ég Fjallabakshringinn, syðri leiðina austur og nyrðri leiðina til baka. Síðan hef ég farið hestaferðir á hverju ári utan eitt, sumarið sem ég var í Skollagróf, og stundum fleiri en eina ferð á ári. Oft eru þetta sömu fé- lagamir. Tvisvar hef ég farið upp í Arnarfell, svo hef ég farið norður Kjöl tvisvar sinnum. Vísnagerð Ég bytjaði að yrkja strax þegar ég var krakki, svona um 10 ára. Eitthvað var ég að láta það heyrast og það var sett ofan í við mig svo að ég lokaði mér alveg gagnvart öðrum. Var samt alltaf yrkjandi fyrir sjálfan mig en lét engan heyra þetta. Mikið voru þetta hringhendur. En það var svo einkenni- legt að þó að pabbi hefði mikið gaman af vísum og þætti varla góðar vísur nema þær væm hringhendar, þá gerði hann lítið úr þessu hjá mér og hvatti mig síður en svo til að eiga við þetta. Það vissu víst fáir um þetta fyrr en ég var orðinn harðfullorðinn maður. Menn segja að ég sé ffekar fljótur að setja saman vísu en mér finnst ég aldrei vera nógu fjótur. Effir að ég kom suður gekk ég í kvæðamannafélagið fðunni og er í því ennþá. Það er skemmtilegur félags- skapur og er heldur að lifna því að margt er um ungt fólk. Fundir em alltaf einu sinni í mánuði. Andrés Val- berg kunningi minn bauð mér með sér á fund og ekki nóg með það heldur setti hann mig inn á dagskrá og ég varð að flytja þama dálítið af vísum og gekk svo bara í félagið og hef verið þar síðan. Við Heiðmar Jónsson frá Ártúnum störtuðum hagyrðingamótunum og það fyrsta var á Hveravöllum árið 1990. Sumarið áður skmppum við Heiðmar norður á Skagaströnd og stefndum þar saman nokkrum mönn- um. Þama borðuðum við saman kvöldmat og spjölluðum og eitthvað var ort. Þar með var ákveðið að hittast um sumarið á Hveravöllum. Þetta varð í ágúst þegar mesta ferðamannahrinan var búin og þetta varð svo sérstaklega skemmtilegt kvöld. Daginn eftir er ég kominn heim þar sem ég var þá í Skollagróf og þá voru fjölmiðlamir komnir í þetta, útvarpið og fóm þeir að spyija mig um mótið. Vildu svo láta mig klykkja út með vísu sem reyndar tókst. Upphaflega hafði verið áætlað að hittast á Hveravöllum að ári en ég segi við hina að úr því að fjölmiðlamir séu komnir í þetta verði sjáanlega of lítið pláss á Hveravöllum og við þurfum því að finna stærra hús, hvort ekki væri tiltækilegt að fara með þetta í landsfjórðungana hvem eftir annann. Heiðmar samþykkir þetta og við för- um sumarið eftir vestur í Dali að Sæl- ingsdalslaug. Við hringjum í Sigvalda Jónsson skólabróður minn á Húsavík og hann kemur vestur. Það verður þá úr að biðja Sigvalda að verða okkar stoð fyrir norðan og útvega húspláss og verða tengiliður. Hann fellst á þetta. Þá förum við norður í Skúlagarð í Kelduhverfi. Framhald ábls 277 Heima er bezt 253

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.