Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.06.2002, Blaðsíða 30
Gróttuviti og fyrrverandi húsakynni vitavarðar. Meginhluta síðustu aldar hafði Vitamálastjórnin sérstakt skip í för- um er annaðist flutninga á hinum ýmsu nauðsynjum til vitanna og vörslufólks þeirra, jafnframt því þeg- ar nýir vitar voru byggðir. Föst venja var að fara svokallaða vorferð milli alltra vitanna, sem gat tekið þrjár til fjórar vikur, auk annarra ferða vegna nýbygginga. Oft varð að leita lags við uppskip- unina, því sjór varð að vera ládauður við hina hafnlausu strönd. Eftirtalin skip önnuðust þessa flutninga frá öðrum áratugi aldarinn- ar: M/s Óskar, e/s Hermóður I., m/s Hermóður II., m/s Mánatindur og m/s Árvakur, auk þess sem gripið var til varðskipanna og reyndar gert enn- þá. Mikið erfiði fylgdi þessum flutn- ingum fyrir áhafnir skipanna. Til dæmis voru gashylkin, sem notuð eru í vitana, yfir hundrað kíló að þyngd og voru tveir menn um hvert þeirra. Oft þurfti að draga þau frá flæðarmáli, yfir torfærur, stórgrýtis- urðir, upp bratta sjávarbakka eða yfir karga þýfi. Sumir staðanna voru Mynd efst: Oft er erfitt með uppskipun á Straumnesi norðan Aðalvíkur. Mynd í miðjunni: Hornbjargsviti í Látravík var reistur árið 1930. Þar var löngum vitavörður Jóhann Pétursson, þekktur bókasafnari. Mynd neðst: Vitinn á Glettinganesi í N-Múlasýslu var upphaflega merktur eins og flestir vitar landsins voru á fyrri helmingi 20. aldarinnar. verri en aðrir. Einna verst orð á sér hafði Straumnesið, norðan Aðalvíkur og Lundey á Skjálfanda, og reyndar margir fleiri staðir. Vélknúnum dráttarbrautum hafði verið komið upp á Hornbjargsvita í Látravík, Sauðanesi við Siglufjörð og Dalatanga við Seyðisfjörð. Tveir síðastnefndu staðanna komust í vegasamband á sjöunda áratugnum og lauk þar með sigling- um þangað. Mér er minnisstæð trillubátsferð frá Haganesvík til Siglufjarðar í lok fimmta áratugarins, er við stímuðum grunnt fyrir Úlfsdali. Á lognsléttum sjó undan Dalatá lá Hermóður II., og GLETT- INCA- NES verið var að skipa upp ýmsu góssi til vitavarðarins í Sauðanesvita. Varan var flutt á opnum uppskipunarbáti 270 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.