Heima er bezt - 01.06.2002, Page 28
Guðmundur Sœmundsson
Heimsókn í
Meðan siglingatœknin var enn á frum-
stigi og engir vitar, þóttu strendur Is-
lands óárennilegar til landtöku og sigl-
ingar hingað því dirfskufullar að vetrar-
lagi meðal annars vegna storma, hafiss
og dimmviðra. Það fer ekki hjá því að
þeir sem sigla að staðaldri meðfram
ströndum landsins hafi einhver kynni af
vitunum, einkum á dimmum vetrarnótt-
um, hvernig þeir keppast við með Ijós-
geislum sínum, að vísa sjófarendum leið
sjávargötuna kringum Island, allt frá
því að fyrsti vitinn var reist-
ur á Reykjanesi árið 1878
og þar til hringnum var
lokað með Hrollaugs-
eyjarvita 1953.
A Reykjanesi vúrfyrsti viti iandsins reistur áriö 1878. Vitinn á myndihni var
hins vegar réistur síöar og er 27 metrar á hœö. \