Heima er bezt - 01.01.2005, Síða 9
Ræturnar eru fyrir norðan
í gegnum tíðina hefur Sigmar safn-
að hlutum sem hafa menningarlegt
gildi. Eftir að hafa safnað verkfær-
um, sem þjóðin notaði á öldum áður
og á síðustu öld, þótti honum nóg
komið. Þessir munir tóku mikið pláss
enda eittþúsund að tölu. Miklu af
þessu safhaði Sigmar fyrir þrjátíu til
íjörutíu árum, flestir munirnir eru að
norðan, úr hans heimahögum og víð-
ar, til þess að bjarga þeim frá glötun.
Það tók hann tvo vetur að skrá mun-
ina og gera við þá í aukavinnu, með
því að halda vel áfram. Hann gaf allt
safnið til Héraðssafns Langnesinga,
sem er í hinu forna íbúðarhúsi
prestsins á Sauðanesi. Síðastliðið vor
fór Sigmar norður til þess að koma
mununum fyrir með aðstoð sérfræð-
inga frá Þjóðminjasafninu, en eins
og gefur að skilja var það gríðarleg
vinna. Sigmar segir að líf sitt skipt-
ist niður í tímabil og núna sé lokið
söfnunartímabilinu í lífi sínu.
Húsið á Sauðanesi var byggt á ár-
unum 1879-1880. Það er hlaðið úr
tilhöggnu holtagrjóti og eru vegg-
irnir 75 sm þykkir. Grunnflötur
hússins er 8 x 6,85. Það er ein hæð,
kjallari og risloft. Þak er klætt með
járni. Smiðir við húsið voru Sveinn
og Björgúlfur Brynjólfssynir, sem
báðir voru miklir hagleiksmenn og
áttu heima á Sauðanesi á þeim tíma
sem húsið var byggt. Árið 1880
flutti séra Vigfús inn í húsið. I
Langnesingasögu eftir Friðrik G.
Olgeirsson segir að húsið hafi ekki
verið fullgert fyrr en tíu árum síðar
í tíð séra Arnljóts Ólafssonar. Rétt
áður en byrjað var að byggja það
rak á land rauðviðarbjálka. „Hann var kaffibrúnn og á lit
og glerharður. Dyraumbúnaður og allar hurðir í hinu nýja
húsi voru smíðaðar úr þessum við, einnig margar hirslur.
Sömu menn stóðu að verkinu og hlóðu húsið,” segir í
Langnesingasögu. Nýlega er búið að gera húsið á Sauða-
nesi upp og er það eins og nýtt bæði að utan og innan.
Bróðir Sigmars, Aðalsteinn Jóhann Maríusson, múrari, sá
um múrverkið og Jóhannes Jónasson um tréverkið.
Sigrar og sorgir
I gegnum tíðina hafa fáir munað eftir eða gert sér grein
fyrir hinu skelfilega slysi Sigmars, það sést ótrúlega lítið
á göngulagi hans og hann notar aðeins einn staf en
gleymir honum oft. Hjólastóllinn er ljarlægur í huga hans
og uppgjöf er eitthvað sem hann veit
ekki hvað er.Sigmar á miklu barna-
láni að fagna og Þórdís kona hans og
hann voru mjög samhent. En sorgin
gleymir engum og hún læddist að
fjölskyldunni árið 1964, þegar Svan-
ur Mar, sonur þeirra hjóna, lést tæp-
lega ársgamall.
18 árum síðar knúði dauðinn aftur
dyra. Nú var það kona Sigmars, Þór-
dís Jóhannsdóttir, sem lést árið 1982,
eftir tveggja og hálfs árs baráttu við
krabbamein. Sigmar segir að Þórdís
hafi sýnt ótrúlegan dugnað í veikind-
unum og hún hafði það að markmiði
að lifa eins eðlilegu lífi og henni var
mögulegt. Verkjalyf reyndi hún að
nota sem allra minnst. Hún var sér-
staklega myndarleg húsmóðir og
dugleg ásamt því að vera einstaklega
góð móðir. Henni tókst það ótrúlega
lengi að vinna öll verk á heimilinu
og lét sjúkdóminn hafa sem minnst
truflandi áhrif á lífsmunstur sitt.
Börn Sigmars og Þórdís-
ar eru: Sigrún Ásta, bóka-
safnsfræðingur, Berglaug
Selma, gullsmiður, Svanur
Mar, lést eins árs, Hanna
María, fatahönnuður og
Þórdís Halla kennari. Sam-
býliskona Sigmars var
Ragnheiður Ríkarðsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og
dóttir Sigmars og Ragn-
heiðar er Áslaug.
Árið 1994 var Sigmar
sæmdur fálkaorðunni, þá
var Vigdís forseti. Einnig
hefur hann verið sæmdur
gullmerki Sjálfsbjargar og
íþróttafélagi fatlaðra, fyrir
störf að félagsmálum þeirra, ásamt heiðursskjölum o.fl.
Nýlega var Sigmar útnefndur heiðursfélagi íslenskra
gullsmiða.
Það að verður að segjast eins og er að það var dálítið
erfitt að fá hann til að segja frá því þegar hann hefur ver-
ið heiðraður og þess vegna nokkur hætta á að eitthvað sé
vantalið.
Þegar Sigmar er spurður hvort hann sakni ekki einhvers
úr heimabyggð sinni, segir hann að það séu björtu vor- og
sumarnæturnar, þegar varla sést munur á degi og nóttu.
Hann fer oft norður og hefur alltaf haft mikið samband
við fólkið í sveitinni, þar sem hann sleit barnsskónum.
Vigdís forseti Islands ásamt Sigmari og
Sigfúsi A. Jóhannssyni, bónda að Sum-
artröð í Þistilfirði, á 150 ára verslun-
arafmæli Þórshafnar.
Dætur Sigmars, á góðri stund.
Heima er bezt 9