Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.2005, Side 17

Heima er bezt - 01.01.2005, Side 17
var nú vegna þess sérstaklega að syn- ir okkar tveir höfðu reynslu á þessu sviði frá Svíþjóð. Þetta gekk sæmi- lega íyrir sig og reyndar seinna nokk- uð vel. Einn sona okkar stýrir þessu fyrirtæki núna.” Hugurinn leitar aftur suður á bóg- inn, þar sem hjónin voru farin að dvelja um jól og áramót löngu áður en þau fluttu alfarin til Spánar. Blundaði ekki í ykkur að vilja eiga jólin á íslandi, það er svo ríkt í mörg- um? „Náttúrulega var eftirsjá eftir mörgu frá íslandi, ekki síst í byrjun á meðan foreldrar okkar voru á lífi. Það varð bara að fóma því eiginlega. Vissulega hefði verið hægt að fara á milli og við gerðum svolítið af því. En við áttum engin börn á Islandi svo ekki voru það börnin sem drógu okkur þangað. Við létum okkur því hafa það að gera þetta svona.“ Sér Garðar eftir því? „Nei, ég hef aldrei séð eftir neinu í þessum efhum,“ segir Garðar og lítur kankvís á spyrilinn. Þetta hefur allt verið skemmtilegt og ánægjulegt. Ljóst er að ekki hentar það öllum að rífa sig upp eins og fjölskyldan gerði, kasta sér í raun út í óvissuna hvað eftir annað. Skipta um um- hverfi, starf og land. Garðar svarar því til að ef til vill sé flökkueðli í þeim hjónum báðum. Erfiðast hafi þó verið að koma sér frá íslandi. „Eftir að við vorum farin frá Islandi varð málið ekki eins flókið. Fyrst flytjum við til Noregs en svo til Svíþjóðar, Stokkhólms nánar til tekið, með það í huga að vera þar að- eins stuttan tíma, sem reyndust á end- anum tvö ár. Þá vomm við hins vegar búin að taka stefnuna á Spán.” Garðar sá lengi um fjármál og bók- hald ferðaskrifstofanna, sem fjöl- skyldan hefur rekið, en er smám saman að draga sig út úr því, finnst kominn tími til að slaka á. Ekki hefur vafist fyrir honum að stunda starfsemina ífá Spáni, tölvurnar sjá til þess. „Nú eru tölvurnar þannig að þær gera manni kleift að gera allan skrambann, meira að segja borga „Ég tel að það sé mjög gott fyrir fólk og fyrirtækin sem það vinnur hjá, að skipta fremur ört um störf. Fimm ár eru til dæmis prýðilegur tími við hvert starf. Ég hef nú setið mun fastar en það reyndar, bæði í ferðamennsk- unni, sem ég hef verið viðloðandi í tíu ár, og sveitarstjórnarbransanum, sem ég vann við í ellefu ár. Skipti sem þessi eru mjög holl. Eins og þeg- ar ég fór frá íslandi til Noregs þá fékk ég mjög áhugavert starf og fékk tækifæri til að gera ýmislegt sem þýddi það að ég fékk algjöra endur- menntun og þurfti á því að halda. Maður verður að þora og treysta á sjálfan sig.“ 1 1 l 4? i ¥i sðF ] 1 y I ! ' ^ * 1 rmmzt iw Með „ nordiska venner “ í Villajoyosa. reikninga í hvaða landi sem er. Ég nýti mér það. Mér finnst besti tíminn í þessi verk snemma á morgnana, svo þegar fer að hitna er maður búinn með það sem þarf að gera.“ Garðar byrjaði gjarnan að vinna klukkan sex á morgnana og vann framundir hádegi. Kjarkur og þor Maðurinn hefur garfað í ýmsu eins og heyra má, hvaða ráð á hann að gefa fólki sem er að hefja starfsferil- inn? „Sumir hafa sagt að ég hafi tollað illa í vinnu,“ segir Garðar og hlær. Hafði Garðar alltaf trú á því að hann hefði hæfileika bæði í stjóm- mál, fjármál og ferðamennsku? „Það þvældist nú fyrir mér að ég hefði hæfileika í stjórnmál,“ segir Garðar og brosir út í annað. „En maður lætur leiðast af stað. í fyrstu var það ekki stjórnmálastarf heldur aðeins sem starfsmaður sveitarfélags. Það þróaðist þannig að ekki varð að gleypa allan bitann í einu heldur með nokkrum skeiðum, þannig fór hann betur í maga.” Hann segir að vissulega hafi verið gaman að vera síðasti sveitarstjórinn í Heima er bezt 17

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.