Heima er bezt - 01.01.2005, Síða 23

Heima er bezt - 01.01.2005, Síða 23
alltaf var valinn sunnudagur. Þetta var sennilega merki- legasta ferðalag ævi minnar, í mínum barnsaugum var þetta veruleg langferð. Þegar féð kom eftir mæðuveikiniðurskurðinn fékk pabbi meðal annars lambhrút sem hann nefndi Blakk. Hann var metfé og pabbi hélt mikið uppá hann en hann var eina skepnan sem mér hefur um mína daga verið illa við, hann var mannýgur þegar ég var annars vegar, en engum öðrum sýndi hann þá takta. Átti ég stundum erfitt með þetta þegar Blakkur var með kindunum, en svo var það að einhver af Reykjavíkurgestunum sem komu á sumrin, gaf mér baunabyssu, sem gerði töluverðan smell þegar maður skaut baun. Næst þegar ég lenti í Blakki hóf ég baunabyssuna á loft og skaut á hann. Hrúturinn lagði strax á ílótta og fyrir hom á fjárhúsunum, er þá pabbi að koma á fleygiferð til þess að bjarga mér og þeir skullu saman og munaði minnstu að pabbi færi kylliflatur. Var ég nú hróðug mjög og lék mér að þessu eftir þetta. Stundum var stanslaust rölt og hlaup við féð, sérstak- lega lambféð eins og gengur og getur orðið þreytandi þegar maður er nýbúinn að eignast lítinn hvolp og hefur engan tíma til þess að sinna honum, þá verður auðvitað að grípa til einhverra ráða. Mitt ráð var að bera hann með mér, margar ferðir á dag og varð helmingi þreyttari fyrir vikið. Einhvern tíma man ég eftir að lítið lamb var borið í bæ- inn til aðhlynningar og vel tókst að bjarga þessari litlu kind, ég var með hana í kassa í eldhúsinu í fáeina daga og kallaði hana Kibbu. Hún var óvenjuleg í háttum og aldrei heyrðist í henni ef hljótt var í húsinu en ef hún heyrði til mín jarmaði hún og var að biðja um hressingu. Svo þegar ég þvoði henni í framan fór hún að sofa eins og þægasta barn. Einar vandi hana undir einhverja ána og þær voru settar út á tún, voru fyrst í námunda við bæinn en ég gat kallað hana til mín, hætti því þó þar sem hún þurfti að fara með fósturmóður sinni. Á þessum árum, á milli 1980-90 var ég sáralítið við féð, hjálpaði þó til við smöl- un og þannig. Nokkrum árum seinna, að hausti til, sé ég Kibbu niður á túni, að hausti til og kalla til hennar. Kem- ur hún þá ekki á fullri ferð og kom alltaf til mín þegar ég kallaði, og það sem meira var, hún þekkti bílinn minn. Benjamín heitinn Oddsson á Flateyri gaf mér rauðjarpa hryssu sem hét Freyja. Hún sýndi okkur margar skrítnar og skemmtilegar til- tektir, var ijörmikið ganghross, skapmikil og dugleg eftir því. Við Einar lékum okkur að því að senda hana á milli húsa og bæjar. Um árabil hafði ég það fyrir venju að fara strax eftir vinnu á veturna í hesthúsið sem við gerðum upp úr Qósinu, leggja á og fara á bak. Var á þessum árum með 3 hross á húsi sem ég hafði fyrir mig. Þessu sinni lagði ég á Sindra, það var brúnn gæðingshestur sem Einar Sigtryggsson á Sauðárkróki gaf mér, og svo teymdi ég Mósa minn sem var heimaalinn öðlingur. Fór ég mína leið og hafði hestaskipti og reið Mósa heim, þetta tók töluverðan tíma og þegar heim kom lagði ég á Freyju sem Séð heim að Mosfelli. var ör en allt í lagi með hana og við fórum okkar leið. Þegar við komum inn fyrir heimreiðarhliðið dettur mér í hug að ríða suður á sléttuna og leyfa Freyju að taka skeiðsprett þar á glæru svelli, en sunnan við veginn var mikill snjór. Freyja tók völdin af mér og ég gat ekkert gert nema sitja, hún hleypti sér á feiknalegan sprett og stefndi á heimreiðarveginn og skaflinn mikla og ryðst í gegnum hann. í vegkantinum hrasaði hún og ég hrökk af baki, ekkert kom fyrir en ég reiddist og leit ekki við henni, hún reif sig af stað og skildi þarna með okkur og hún þaut heim á hlað. Einar var að koma utan veginn og sá hverju fram fór, og ég hugsaði mér að hann myndi spretta af henni og setja hana inn, ekki ætlaði ég að sleikja .úr henni fýluna, heldur labbaði snúðugt heim á hlaðið og um leið og ég opna hurðina að kjallaranum gerðist tvennt i einu. Freyja kom og henti sér á hnén við tröppurnar og teygði til mín hausinn, greinilega að biðjast afsökunar, um leið kemur Einar fyrir hornið og sér þessa undarlegu sjón. Fyrirgefningin var auðfengin, manni fer að þykja mikið til svona persónuleika koma. Þriðja gæðingshrossið sem mér var gefið af góðum vini, Hilmari heitnum Jónssyni frá Ási í Hegranesi, er moldótt hryssa sem heitir Gola og er systir Þokka frá Garði. Molda, eins og ég kalla hana, er bæði falleg og góð. Hilrnar bað Einar fyrir hana í endurhæfingu sem tókst frábærlega vel. Undanfarin ár hefur hún verið í fol- aldseign og ég er þess fullviss að á hverju vori þegar hún kastar vill hún að ég dáist að barninu hennar og leiki við það. Það hef ég líka gert þegar ég hef getað, það muna folöldin og verða gæf upp frá því. Störfin utan búskaparins Ég byrjaði að vinna á Húnavöllum haustið 1974. Man ég að ég hitti Þuríði frá Gilá, sem þá var ráðskona við skólann, og barst í tal að við værum hætt að búa með kýrnar. Hún segir: „Þú kemur bara í eldhúsið til mín“ sem og varð, því áður en ég vissi af var ég ráðin starfs- stúlka við mötuneyti Húnavallaskóla. Átti ég þar frábæra daga, vikur, mánuði og ár, allt til 2002, að undanskildu því að ég vék úr starfi tímabundið 1992, fyrir konu sem vildi fá vinnu í mötuneytinu, en ég vann þann tíma í Heima er bezt 23

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.