Heima er bezt - 01.01.2005, Blaðsíða 44
fyrirmynd, svo hef ég gríðarlega reynslu af fæðingum, þótt
þær hafi nú allar komið úr rollurössum, þar til nú”.
Mamma Unnar hringdi til hennar um kvöldið, og bauð
hana velkomna heim með þá litlu, og sagði að þau pabbi
hennar vildu gjaman halda fyrir þau skímarveislu þegar
þau vildu láta skíra. Unnur sagðist vilja láta skíra þann 25.
apríl og mamma hennar sagðist skyldu sjá um allt, koma
með ættarskímarkjólinn þveginn og tilbúinn með bleikri
slaufu og dúllum, hringja í fólkið og bjóða því og þau
þyrftu bara að mæta. „Skírir ekki séra Víglundur annars?“
spurði hún og Unnur hélt það nú. Séra Víglundur var mjög
glaður yfir því að fá að skíra stúlkuna eins og öll önnur
böm í ijölskyldu Unnar, og sérstaklega vegna þess að Erla
eignaðist þarna nöfnu og var guðmóðir bamsins. Hinn
skírnarvotturinn var svo Kristín, sem fékk að lesa upp
skímarskipunina í kirkjunni. Víglundur var jafnvel svo á-
nægður að hann bauð öllum börnum sínum og tengdaböm-
um að koma, sem þau gerðu og þetta varð hin mesta skím-
arveisla í Lækjarbrekku.
Unnur horfði með aðdáun á Steinar, þar sem hann hélt
baminu þeirra undir skím í gömlu kirkjunni á Völlum, og
lét hugann reika aftur á bak þangað sem hún stóð í rigning-
unni á 25 ára afmælisdaginn sinn fyrir utan Hótel Island,
næstum viss um það að hún myndi aldrei sjá hann aftur og
ást hennar hefði verið fótum troðin af ævinfyramanni sem
ætti kæmstu í hverri höfn, eins og þar stendur. Hana óraði
ekki fyrir því að hún stæði hérna ári seinna við skímarat-
höfn stúlkunnar þeirra. Eins og í ijarska heyrði hún séra
Víglund segja: „Og hvað á bamið að heita?“ Og Steinar
svara: „Kristín Erla”.
Sú stutta vaknaði ekki einu sinni þegar hún var vatni aus-
Nytt timarit
um dulræn malefní
Meðal efnis:
Þáttur um Hafstein Björnsson miðil, frá sjónarhóli
Guðlaugar Elísu, ekkju hans.
Þórunn Kristín Emilsdóttir ritar um upplifun sína á huldufólki
og orku.
Guðmundur Sæmundsson segir frá reimleikum í
félagsheimili og óskildu atviki er tengdist umræðum um
Einar Jónsson, lækningamiðil frá Einarsstöðum.
Örnólfur Thorlacius skoðar fréttir um að boð hafi borist utan
úrgeimnum.
Birgitta H. Halldórsdóttir er með þátt um grös og
lækningamátt þeirra.
Spurt hvort gamla, kínverska hefðin Feng Shui, geti
hjálpað eitthvað til í skipulagningu húsnæðis.
Sagt frá andlegum leiðbeinendum að handan.
Fróðleikur um skönnun áru mannsins í leit að sjúkdómum
Birtur kafli, sem talinn er vera samtal
við Hitler að handan.
■' Hafsteinn
Björnsson
miðill, frá sjónarhóli
Guðlaugar Elísu
® Andamyndir
Huldufólk og orka
Rcimleikar i felagsheimili
Grosalækningar
Englar
Hvar er Hitler
Hringasetur
Áruskónnun sem sjúkdómsgreining
Hjálpar Feng Shui?
Boð utan úr himingeimnum
X9T\ W málefní
Bulrazn
' ibl I. drg. . Haut'helli 2004 . Verð i,,. 790
Ýmislegt fleira er í blaöinu, sem fæst
á öllum helstu blaðsölustöðum.
44 Heima er bezt