Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2008, Side 24

Heima er bezt - 01.11.2008, Side 24
Al Capone var einn þekktasti bruggari Bandaríkjanna á bannárunum svonefndu. „í annað skipti hafði Bjöm ekki gert boð á undan sér og var sestur inn á sýslumannskontór áður en nokkur vissi af. Júlíus heilsar honum, opnar síðan dymar og kallar til konu sinnar að nú mætti hún til með að senda einn krakkann til ákveðins manns í kaupstaðnum (sem grunaður var um brugg. Aths. mín) og kaupa hjá honum rauðmaga í matinn fyrir Bjöm Blöndal.“ Hannes Hafstein sonur Júlíusar segir í ævisögu sinni „A vaktinni“, „að Þingeyingar hefðu stundum sagt um pabba hans, að hann hafi verið „dómari hjartans““. Margar fleiri bruggarasögur kunni ég en er búinn að gleyma þeim. Af seinna lögbrotinu em líka til góðar sögur. Einu sinni var ég á ónefndum nýsköpunartogara. Þannig var innréttingum á íbúðum í afturskipinu háttað að svokölluð „ganering“ afmarkaði herbergin frá skipsíðunni. Það var í rauninni hægt að skríða bak við ganeringuna, bak við öll herbergin í síðunum. En smálúgur (manngengar þó) voru svo í hverju herbergi út í síðuna. A skipi því, sem sagan er frá, vora kokkarnir í káetunni aftast, bræðslumaður og bátsmaður í klefa stjómborðsmegin þar fýrir framan. I þeim klefa var lúgan í efri kojunni en þar svaf bræðslumaðurinn sem við skulum kalla Sibba. I koju stjómborðsmegin í káetunni svaf fyrsti kokkur, sem við getum kallað Magga. Sibbi keypti oft smábirgðir af víni í Þýskalandi, svona til að drýgja tekjumar, það kom sér oft vel ef leitað var hafnar í brælum á miðunum. Maggi kokkur var mikið gefin fýrir sopann eins og fleiri. Stóð veislan oft yfir alla heimleiðina úr siglingu. Svo var það eitt kvöldið drykkjarföng þrutu áður en veislan hafði verið sleginn af. Maggi vissi af þessari aukabúgrein Sibba. Ákveður hann nú þama um kvöldið að reyna að hnupla einni flösku af birgðum hans. Skríður hann nú út um lúguna sem var í hans koju og fram að birgðum Sibba. Eittvað svaf Sibbi laust því hann vaknar við þmskið og opnar lúguna. Rekur þá Maggi hausinn fram í lúguna og segir: „Sæll Sibbi minn, það er ræs.“ Hinn, sem áttaði sig ekkert, lokaði lúgunni og klæddi sig og skildi svo ekkert í af hverju kokkurinn hafi verið að ræsa sig og hvaðan hann kom til þess. í gamla daga voru svokallaðir „servantar“ í herbergjum yfirmanna á kaupskipum. Þetta leit út eins og skápur en samanstóð af tveimur tönkum að ofan og neðan, á milli var vaskur sem opnaðist út og svo var smá rör og krani úr effi tanknum, sem í var yfírleitt hreint, kalt vatn. Neðri tankurinn tók svo við óhreina vatninu þegar menn höfðu lokið sér af og lokað vaskinum, því við það helltist úr honum ofan í tankinn. Það var yfirleitt starf messastráksins að fylla á og losa. Gómað brugg á bannárunum í Bandaríkjunum. Svo var það eitt sinn að eitt af okkar flutningaskipum kemur til Reykjavíkur. Brytinn stóð fýrir smá innflutningi á guðaveigum í sterkari kantinum. Hann hafði t. d. þann háttinn á að hann fyllti ferskvatnstankinn í servantinum af 96% spíra. Svo, eftir að tollaramir höfðu lokið sér af, var tankurinn tæmdur á flöskur, sem vinveittir fengu keyptar á vægu verði. Nú vildi svo til að þeir könnuðust vel við hvom annan, tollarinn sem stjómaði leitinni og brytinn. Brytinn var í þá tíð einn af fjórum æðstu yfirmönnum skipsins og vitanlega kom flokkstjóri tollaranna til hans að yfirfara birgðimar. Brytinn býður honum sæti og upp á drykk, sem tollarinn þiggur. Brytinn tekur upp fínustu sort af viskíi, hellir í glösin og segir svo: „Ég þarf að skreppa eftir blandi.“ „Það þarf ekkert,“ segir tollarinn, opnar servantinn og pumpar 96% spíra út í viskíið. Einhveija eftirmála hafði nú þessi sterka blanda, sem ekki verða raktir hér. En þetta var fyrir tíma „flaska í vasann“ málins. Einn skipsfélagi minn, sem var heljarmenni að afli, stóð í smáinnflutningi, sem margir aðrir. Eitt sinn eftir að skipið hafði verið „klarerað“ fór hann að bera innflutninginn í land og var að rogast með tvær handtöskur fullar af guðaveigum. Þá vill ekki betur til en svo að einn af tollumnum, sem að vísu var góður kunningi hans, kemur labbandi niður bryggjuna og á milli mannsins og bíls hans. Taka þeir nú tal saman en tollarinn var ein af þeim mönnum sem þótti gaman að tala um daginn og veginn. Sagði vinur minn mér það seinna að þetta hefði verið sú mesta þrekraun sem hann hefði lent í, því hann þorði ekki fyrir sitt litla líf að setja töskumar niður, af ótta við að glamrið í glerjunum kæmi upp um hann. 504 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.