Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2008, Side 35

Heima er bezt - 01.11.2008, Side 35
Vér smávaxnir erum, en eitt sinn verðum menn, og efnum svo heitin, sem gerð hér voru þrenn, að biðja og starfa og styðja til þarfa; það gerir oss djarfa og dugnað eykur senn. Ekki er það neitt ótrúlegt, að slíkir söngvar sem þessi hafi blásið drengjunum kapp í kinn. Fermingarfaðir minn, séra Björn O. Bjömsson, hafði notið leiðsagnar sr. Friðriks í KFUM sem ungur drengur, og hann sagði um hann þessi orð: „Merkilegur maður, merkilegur maður“, (tvítók það). Nyrst á Sjálandi er bær, sem heitir Gilleleje. Þangað hef ég einu sinni lagt leið mína, um hásumar, Þar er náttúrfegurð mikil. Það segir okkur Gilleleje-valzen, er þannig hljóðar: Gilleleje-valzen Ved saa skön en strand, som man önske kan hist ved Kattegats og Oresundets bred ligger byen, som jeg vil synge om, thi det er det bedste stedjeg ved. Omkvad (Viðlag) Ja, Gilleleje, du lille fiskerby, mange glade minder gemmer jeg om dig. Gilleleje, dit navn har verdens ry, hvor jeg end lever, saa glemmer jeg dig ej. Og hvernig væri að birta hér stúdentasönginn gamla, Gaudeamus, bæði á latínu og frónsku. Gaudeamus igitur juvenes dum sumus. Post jucundam juventutem, post molestam senectutem nos habebit humus. Jón Helgasin, prófessor og skáld, í Kaupmannahöfn, sneri þessu ljóði á okkar fagra móðurmál á þessa leið. Finnst ykkur ekki honum hafa tekist það með ágætum? Kœtumst meðan kostur er kátra drengja flokkur. Æskan líður ung og fjörleg, el/in bíður þung og hrörleg. Moldin eignast okkur Og enn til Danmerkur. Islendingar sækja stöðugt til þessa gamla sambandslands. Sumarið 1964 var ég um skeið við nám í Askov og síðar í Kennaraháskólanum Kaupmannahöfn, í Emdrupborg. Þá setti ég saman Ijóð undir lagboðanum „En sömand har sin enegang" (Johannes V. Jensen). I Islendingum enn sem fyrr býr útþrá, sterk og heit. Til flarri landa fjölmennir þeir fara í menntaleit. Og kennara yflr kaldan á/ til Kaupinhafnar bar, En það er ekki nýtt af nál, að nemi Landar þar Og kátir gengu kennarar um Kaupinhafnartorg. Og hratt þá alla hugur bar til húsa í Emdrupborg. En þangað skyldi skeiðið þreytt, að skerpa œðri mennt. Og nám er fœstum nokkuð leitt, ef nógu vel er kennt. Og vonin ekki varð þeim tá/ né vondar freistingar. Þeir lœrðu drjúgt hið danska mál, - og dásamlegt það var Þeim léðist einnig leiðsögn góð um lendur máls og fen, því rétt að verki röggsöm stóð hún Ragna Lorentzen. Og tíðum hún hjá töflu stóð og tók sér krít í hönd. Með /éttu fasi lyfti þjóð og leysti málsins bönd. Hinn mjúki tónn og milda lund var megin kennarans, því lifðu allir Ijúfa stund og litu upp ti/ hans. Við hö/dum senn í heimalönd um háan /oftsins geim. Af Sjálands fögru sumarströnd er svifið norður- heim til Islands, þar sem álfur býr, og áttum gleði og sorg. En hugur seinna hrifinn snýr til húsa - í Emdrupborg. Þá er þessi þáttur á enda. Jólaþáttinn tek ég senn að undirbúa. Er nokkur, sem vill senda mér jólaljóð, gömul eða ný? Það mundi gleðja mig ósegjanlega. Með fyrirfram þökkum. Auðunn Bragi Sveinsson, Hjarðarhaga 28, 107 Reykjavík. audbras@simnet. is Heima er bezt 515

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.