Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2008, Síða 36

Heima er bezt - 01.11.2008, Síða 36
Ur hlafaarpannm Þetta er svo alveg öfugt þegar virknin er í lágmarki, og segja vísir menn á þessu sviði að þannig ástand hafi verið síðustu tvö árin. Til eru þeir sem vilja meina að hin svokallaða Litla ísöld, en það heiti hefur verið notað yfir langvarandi kuldatímabil sem ríkti á tímabilinu 1450- 1900, að talið er, komi heim og saman við óvenjulega langt lágmarkstímabil sólbletta, tímabil sem nefnt hefur verið „Maunder lágmarkið“, og er það nefnt eftir stjömufræðingnum Edward W. Maunder, sem fyrstur tók eftir þessari óvenjulegu lægð sólbletta, en Maunder varuppi 1851-1928. Hefðbundin hringrás sólblettanna mun svo hafa byrjað aftur snemma á 19. öldinni og hitastigið sömuleiðis. Nýtt sólblettatímabil er því um það bil að hefjast, og þá um leið tilheyrandi áhrif á veðurfarið á jörðinni, ef marka má orð þeirra veðurspámanna sem rýna í slíkt út frá sólbletta fræðum. Þeir telja sem sagt að það komist á skrið á næsta ári og muni ákvarða nokkuð hitastig hjá okkur næsta áratuginn. Þeir segja að þetta nýja sólblettatímabil nái í hámarki sínu um eða upp úr árinu 2013, og þá verði nokkur hlýnun á jarðarkúlunni. Við skulum því sjá hvað setur, og verður gaman að fylgjast með hversu sannspáir þessir ágætu fræðingar verða í því efni. Leiðrétting Víxlun nafna varð undir myndum í grein Ömólfs Hall í síðasta hefti, á bls. 447. Myndin til vinstri er af Elton Hall og sú til hægri af Ragnari Hall. Biðjumst við velvirðingar á misrit- uninni. Elton Hall. Ragnar Hall. MYNDBROT Átt þú í fórum þínum skemmtilega mynd, t.d. af atburði, stað, húsum, dýrum eða fólki, sem gaman væri að birta í Myndbroti? Ef svo er því ekki að senda hana til birtingar og Ieyfa lesendum HEB að njóta hennar líka? Síldarárin í Neskaupstað Þessi mynd er tekin á síldarárunum í Neskaupstað, líklega 1964. Ekki er vitað hvaða fólk sést á myndinni, en athyglisvert er að stúlkan, sem er að raða síldinni í tunnuna, er ekki há í loftinu. Sendandi: Helgi Hálfdanarson, Höfn Hornafirði. 516 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.