Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.2009, Qupperneq 48

Heima er bezt - 01.08.2009, Qupperneq 48
Einar E. Sœmundsen Hestavísur Þáttur um hesta, reiðmenn og hagyrðinga Nú er hlátur nývakinn. Nú er grátur tregur. Nú er ég kátur nafni minn. Nú er ég mátulegur. Ekki veit ég hvort þið, sem þátt þennan lesið, eruð svo gerðir, að ykkur hlýni um hjartarætumar, þegar þið heyrið farið með vísu þessa, eða raulið hana sjálfir. En svo er um mig. Þessi vísa kemur mér ævinlega i gott skap. Hún er eitthvað svo notalega hressandi. Þessi vísa er ein af þeim mörgu stökum þjóðarinnar, sem ekki hefír tekist að feðra. Að minnsta kosti verður hér ekki neinu slegið föstu um hinn rétta töður hennar. En það hafa menn komist næst um heimkynni hennar, að fullyrða má, að hún muni kveðin vera í Húnaþingi um eða eftir miðja síðustu öld. En hún er líka ein af þeim mörgu góðkunningjum alþýðu, sem margir viidu eflaust kveðið hafa og þóst menn að meiri, eins og þeir líka máttu. Ekki veit ég heldur, hvort ykkur verður eins og mér, að setja vísu þessa í samband við skemmtireið að sumarlagi, eða eitthvað þess háttar. En ég geri það. Mér fínnst vísan hljóti að vera kveðin undir áhrifum þess yndis, er góðhesturinn veitir hagyrðingnum, þegar Bakkus er með í förinni og allt leikur í lyndi fyrir kátum og frjálslyndum sveinum. Og mér finnst ekki ósennilegt, að hún muni kveðin vera til dýrðar flöskueigandanum, sem býður guðaveigarnar félögum sínum á meðan að hestarnir rása og blása og jafna sig undir næsta sprettinn, er bíður þeirra. Að minnsta kosti þekki ég þá hrifning, er hún vekur í hópi slíkra drengja. Og ég trúi ekki öðru, en að einhver, sem línur þessar les, kannist við eitthvað þess háttar. Mér fannst síst óviðeigandi, að hefja þátt þennan með stöku þessari, því efni hans er náskylt skilning þeim, er ég legg í uppmna vísunnar. Það em hestavísumar, eða sá þáttur alþýðuvísnanna, sem helgaðar er hestinum og sambúðinni við hann, er ég ætla að rifja hér upp að nokkru. Og ég get fullvissað ykkur um það, áður en lengra er haldið, að það er langt frá því að vera ómerkilegt efni. Eins og ef til vill ýmsa rekur minni til, hefi ég nokkmm sinnum áður i erindum mínum um alþýðukveðskap, minnst á hestavísur. Sömuleiðis hefi ég og á þær drepið í greinum, sem ég hefi birt í blöðum og tímaritum, um sama efni. En ég hefi alla jafnan orðið að fara svo fljótt yfir sögu vegna þess, að rekja varð að nokkru efni alþýðuvísnanna yfír höfuð og benda á gildi þeirra. Þó mun ég hafa frá því skýrt að hestavísumar væri álitlegur flokkur í alþýðuvísnasafninu og hann ekki sá lakasti. Og það er einmitt það, sem ég ætla að rökstyðja að nokkm í þætti þessum. Frá því sögur hófust í landi þessu, hafa íslendingar haft miklar mætur á hestum sínum. Þegar á söguöld létu fommenn sér mjög annt um hesta sína. Sumir mætir menn í heiðni höfðu átrúnað á hestunum og helguðu þá goðunum. Og kapp var mikið margra heldri manna í millum, að eiga sem besta og fegursta hesta. Höfðingjar skiptust og á góðhestum til trausts og vinfengis og geta sögumar þess ekki ósjaldan, að hestar þeir, er afbragð þóttu, voru merkilegustu gjafimar höfðingja í milli. Og svo hefír það verið á öllum öldum, að hesturinn hefir verið í hávegum hafður og meira virtur en önnur húsdýr. Þá hefir það og jafnan verið talið mönnum til prýði, að vera hestamenn og ekki síður reiðmenn. Reiðmennskan hefír verið ein af þjóðlegustu íþróttum einstaklinganna og þeir menn mikils virtir, er kunnir vora að því, að vera taumslyngir og reiðkænir. Svo hefir að minnsta kosti þótt allt fram á okkar daga, þó að þess gæti minna nú, þegar hver reiðbjálfinn þykist mestur og bestur af því, að böðlast einhvem veginn áfram og skeyta hvorki um skömm né heiður. Það er ekki gæðingsefninu að kenna, þó að hesturinn stigi „aldrei ærlegt spor alla sína daga“. En þau dæmin era alltof mörg nú á dögum, enda afiturför mikil í þessu efni frá því sem áður var. I þáttum og ævisögum ýmissa manna á öllum öldum og fram á okkar daga, er margan fróðleik að finna um ágæti fjölda hesta, er góðum kostum þóttu gæddir og margar frægðarsögur af þeim skráðar. Jafnframt er og getið tjölda manna, er sérstaklega þóttu fram úr skara um reiðmennsku og hestavit. Um Stefán Olafsson, prófast og skáld í Vallanesi, er þess 336 Heima er bezt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.