Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.02.1973, Side 4
RITNEFNDARGREIN
Kæru þjáningarbræður og systur. Loksins,
loksins kemur hið langþráða blað út.
Blaðið sem þið hafið beðið eftir sfðan 1
haust, blaðið sem mestar vonir hafa ver-
ið bundnar við frá upphafi blaðagerðar.
Blaðið sem uppfyllir ykkar leyndustu von-
ir. Já loksins kemur Blysið út, sneisa-
fullt af skemmtilegheitum, því skásta sem
við gátum týnt úr hinum vesæla andlega
úrgangi nemenda.
já það er alvarlegt mál með hina andlegu
framleiðslu ykkar nemendur góðir, hún er
ekki upp á marga fiska, og þó. Ekki
vantaði áhugann á að senda eitthvað í
blaðið, það barst alveg hellingur af
athyglisverðu efni út af fyrir sig, en það
var ekki ætlunin að gefa út KLAMBLAÐ,
enda hefði það fengið lítinn hljómgrunn
meðal skólastjórnarinnar, en allt efni
sem barst og ekki fékk náð fyrir augum
okkar ritnefndarmeðlima, er geymt á
vissum stað.
Þrátt fyrir miklar og erfiðar fæðingar-
hríðar kom afkvæmið í ljós á réttvun
tíma(?). Eins og gefur að skilja hlýtur
afkvæmi okkar, að bera merki hinnar
þimgu fæðingar og er auðsjáanlega kryppl-
ingur andlega og sálarlega þó svo sé,
þarf ekki endilega að vera leiðinlegt að
kynnast afkvæminu, síður en svo saman-
ber orð fylgdarmanna Börks er þeir voru
að eltast við Gisla Súrsson: "Gaman þykkir
oss at fíflinu ok horfa á þat, svá sem þat
getr ærlega látið.". Eins og áður hefur
verið skrifað er blaðið sneisafullt af
skemmtilegheitum og mæli ég hiklaust með
því sem vönduðu og skemmtilegu blaði,
vel skrifuðu og fyndnu. Má í raun og
veru segja að blaðið er einn brandari frá
upphafi til enda. Tel ég mig ekki fara
með nein ósannindi, þó ég skýri frá því
að meira að segja sjálfri ritnefndinni þyki
alveg óskaplega gaman að blaðinu og eru
það mikil meðmæli.
Ég ætla að nota þetta tækifæri og skýra
lesendum frá einu stórkostlegu og hrylli-
legu hneyksli, sem komið hefur upp hér f
skólanum, án þess að nokkurn hafi grunað
hvað væri á seiði, eða hvort það gæti
skaðað einhvern, sem það því miður svo
sannarlega gerir. Viss hópur manna hér
í skólanum hefur gert sig sekann um
svívirðilegt athæfi sem þung viðurlög ættu
að varða við, en þvf miður eru engin lög
svo áhrifarík að þau geti náð yfir þetta
atriði, hvað þá refsað fyrir það athæfi.
Furðu lítill hópur (fyrir utan sakborning-
ana sjálfa) veit um þetta óhæfuverk. Ég
held ég megi segja, að það sé aðeins rit-
nefndin og svo ólafur nokkur Lárusson
kroppaliðkari, viti um þetta. Astæða er
þó til þess að láta þetta vitnast lengra,
svo að hægt sé að hafa hendur í hári
þeirra, sem troða tómum mjólkurhyrnum,
súkkulaðibréfum, karmellubréfum, próf-
verkefnum, glerbrotum og jafnvel óútfyllt-
um (sem betur fer) hreinlætis eyðublöðum
f póstkassa Blysins. Ooooohhh erðanú
dónar.
Virðingarfyllst 7899-4177
íslandjús
vara-vara-vara- ritstj órinn.