Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.02.1973, Side 6
6
VIÐ ERUM HVORKI KOMMAR NÉ
NAZISTAR
Viðtal við stjórn Þjóðemishreyfingu
íslendinga.
Stjórn Þjóðernishreyfingar íslendinga skipa
þrfr ungir menn, það eru þeir, Guðni
Bragason, Gunnar Hrafnsson og Sigurður
Jónsson, sem jafnframt er formaður.
Sérlegur sendimaður Blysins átti stutt
rabb við þessa ágætu menn, sem allir eru
í landsprófi í Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Aðspurðir hvenær hreyfingin hafi verið
stofnuð svöruðu þeir þvf til að hún hafi
verið stofnuð að frumkvæði formannsins
hinn 1. des. 1971. Markmiðið væri að
stofna seinna meir "eitthvað stærra og
meira" þ.e. að stofna stjómmálaflokk
þegar aldur er orðinn nægur.
Er hreyfingin pólitísk?
já hún byggist á þrem alþjóðlegum megin-
reglum, svarar Gunnar. Þessar reglur
eru: efla þjóðlegar venjur og siði, skil-
yrðislaust einstaklingsfrelsi og ákvörðunar-
frelsi án íhlutunar annara þjóða.
En hvar standið.þið f pólitfkinni. Eruð
þið hægrimenn, vinstrimenn, jafnaðarmenn
eða bara Framsóknarmenn og þá ekki neitt?
Þetta er allt óviðkomandi nútfma flokkun á
pólitfskum hugtökum, sem algjörlega er
óraunhæft að gera. Annars er svarið þeg-
ar komið hér að framan.
Hvað með landhelgismálið ? Eruð þið
ánægðir með framgang þess?
Nei. Það er sýnd allt of lítil harka gegn
þessum sjóræningjum. Þessi stefna er
algjörlega ósamboðin fslendingum gegn
ótýndum glæpamönnum. Þessu svaraði
formaðurinn. Það á að forðast það að
semja, Bretar og V-Þjóðverjar geta ekki
stundað veiðar án þess að við aðstoðum þá
f einhverri mynd.
Hvað hafið þið að segja um herstöðvarmálið?
Málið er mjög flókið. Það þarfnast gagn-
gerar athugunar. Landið verður að hafa
varnir gegn utanaðkomandi ríkjum sem
ógna sjálfstæði frjálsra þjóða með þvf að
reyna að hafa áhrif á innan- og utanríkis-
mál. Það er vissulega hvimleitt að hafa
her f frjálsu landi, segir Guðni, og það
er ósamboðið sjálfstæði íslands. íslend-
ingar eiga að taka við störfum varnarliðs-
ins, bætir Sigurður formaður við. A með-
an heimurinn skiptist f hernaðarbandalög,
verðum við f Nato.
Nú, hvemig stendur á því að þið hafið
tekið ykkur það nafn sem bæði nazistar
og kommar hafa notað sér til framdráttar.
Er ykkar framferði líkt þeirra?
Nafnið hjá þessum flokkum er blekking.
Við erum þeir einu sem hafa hina réttu
ástæðu til að hafa þetta nafn. Það hefur
áður komið fram. Við erum hvorki nazist-
ar né kommúnistar. Nafnið hjá þessum