Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.02.1973, Page 7
fyrrgreindum flokkum var notað sem yfir-
skyn fyrir heimsvaldastefnu. Vi6 erum
raunverulegir þjóðernissinnar. Þeir
kumpánar voru algerlega sammála með
þetta svar, þeir næstum því hneyksluðust
á spumingunni.
Mikið hefur verið deilt um ritmál okkar
íslendinga og þá aðallega hvort "z" og "y"
séu æskileg í málinu, því meirihluti lands-
manna getur ekki notað þessa stafi rétt.
A að fella niður zetu og ufsilon.
íslenzkt þjóðerni byggist meðal annars á
ritmálinu. En það mætti skrifa tvímynda
orð með einföldu og sleppa zetu.
Er eldra fólki en þið eruð leyfð innganga
í hreyfinguna?
Þetta eru fyrst og fremst æskulýðssamtök
og gamalmenni eru ekki æskileg til að
byrja með, svarar formaðurinn, en eins
og áður sagði, er ætlunin að stofna stjórn-
málaflokk og þar mun verða sjálfkrafa til
æskulýðsdeild með félki allt að tvftugu
og svo að lokum......
Vér skorum á allt ungt fólk sem ber hag
lands sfns sér fyrir brjésti að fylkja sér
undir merki Þjóðernishreyfingar íslendinga.
AUÐÆVI. . .
Ég lék mér að stúlkum lífið allt,
mitt leiksvið f rúmmi og f hlöðu.
Og forðum, ef var mér á fótum kalt
ég tróð mér undir hana Gyðu.
Ég óf úr seðlum mitt ævistig,
og auður minn spratt úr svalli.
Öll heimsins auðæfi hylla mig,
af stúlkum er nóg ef ég spjara mig.
J.I.K. m2.
ASTIN MfN. . .
Fárleg eru faðmlög þfn,
fjötur minna vona,
hjartans nunnu fífan mín,
nfstu mig ekki svona.
MENNTUN. . .
Ekkert reynir anda manns
undir sig að kúga,
eins og þetta andskotans
amstur við að læra.
J.I.K. m2.
KENNARAR. ..
I krakka troða kennarar
kristni boða um sveitirnar.
Fóðra á moði mennina
máttarstoðir heimskunnar.
J.I.K. m2.
J.I.K. m2.