Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.02.1973, Page 12
12
Hvaða lýsingarorð gætirðu notað um heim-
inn eins og hann er f dag?
Úreltur.
Finnst þér að ætti að leggja niður þéringar
og ef ekki, þá hverja á þá helzt að þéra?
Ég þekkti einu sinni mann, sem var bú-
inn að vera trúlofaður f tuttugu ár og
þéraði alltaf kærustuna. Ég held, að
svokölluðu ástföngnu fólki væri hollt að
þérast. Aðrir mega gjarnan þúast.
Finnst þér að mætti leggja niður kennslu
á laugardögum ?
Þvert á móti. Ég vil kenna langl fram
eftir degi á laugardögum. Hins vegar
sýnast mér ýmsir nemendur hafa þörf
fyrir hvfld á mánudögum.
Hefur þú eitthvað kjörorð, og ef svo er þá
hvað er það?
Kjörorð mitt er: NÚ ER NÖG KOMIÐ.
Astaróður TIL ÞfN
Og ég sagðist ákaft elska þig,
þú endurtékst það sama við mig.
Og við urðum bráðánægð bæði.
Svo kom loks að því að við sögðum ei neitt.
En seinna varð Ijést að við hugsuðum eitt,
um hjénarúm, herbergi og næði.
Jónas Ingi Ketilsson M2.
AUGLÝSINGAR.
Vill kaupa notaðan tannbursta, hátt verð
f boði.
Anna Andfúla 4v.
óska eftir að komast f fæði f hádeginu,
helzt nálægt Höfðaskóla
Jón Magni Guðmundsson.