Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.02.1973, Page 19
UPPSKRIFT I
Það voru eitt sinn hjón sem boðin voru í
partý til kunningja sinna. A boðstólum
voru meðal annars tartalettnr undurgóðar.
Jaíningurinn sem f þeim var, var sérstak-
lega góður. í honum voru meðal annars
baunir. Seinna ákváðu þessi sömu hjón
að halda partý, og hafa meðal annars
svona tartalettur hjá sér. Þegar að því
kom að búa til jafninginn vantaði þau baun-
ir. Þau dóu ekki ráðalausT Karlinn
skokkaði út í skúr og náði f haglaskot sem
hann átti og dembdi þeim svo út í jafning-
inn. Svo komu gestirnir og þeir borðuðu
tartalettur og hældu þeim á hvert reipi.
Samt var nú hægt að sjá skrítnar viprur
á andlitum sumra þegar reynt var að
kyngja. En sem sagt, allt gekk stórslysa-
laustf
Daginn eftir partýið, hitti svo gestgjafinn
einn gesta sinna. Þeir tóku tal saman og
spurði gestgjafinn gestinn hvernig honum
hefði þótt tartaletturnar. Gesturinn svar-
aði: "Þær voru ágætar en þegar konan
mín og ég komum heim skeði dálftið sorg-
legtf Ég var að klæða mig úr skónum og
þurfti að beygja mig til þess, en þá allt
í einu skaut ég köttinnf
Asa Björk Hansd.
3. bekk F.