Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.02.1973, Side 21
21
ÍÞRÖTTASPJALL
Þó virðast megi að íþróttalíf í skólanum
sé með minna móti er þvf eigi svo farið
f flestum tilvikum. Mjög mikil vöntun er
á almennilegu húsnæði fyrir rúmfrekustu
íþróttirnar svo sem körfubolta og hand-
bolta. Valsheimilið hefur að ég bezt veit
verið aðeins notað fyrir nokkra leiki 1
handbolta, en leyfi hefur ekki fengizt fyrir
áframhaldandi not af því. En þó að margt
megi gagnrýna í fþróttamálum skólans seg-
ir þá enginn að ölafur vinur vor Lárusson
standi sig ekki í að koma fjöri f stráka-
kroppa f leikfimistímum.
Til að fræðast um það er gerst hefur f
íþróttamálum skólans það sem af er skóla-
árinu, hafði íþróttasérfræðingur Blysins
smá viðtal við formann íþróttanefndar skól-
ans herra Elías Guðmundsson meðan aðrir
nemendur voru að neyta andlegrar fæðu.
Innanhússmót hafa ekki farið fram vegna
þess að húsnæði af réttri stærð hefur vant-
að, sagði Elías, en þó hefur blakmót farið
fram. Þar var hörkuspennandi keppni
aðallega í úrslitaleiknum, en leikar fóru
svo að bekkjarlið M2 fór með sigur af
hólmi.
Skólaliðið f handknattleik lék tvo leiki við
Armúlaskóla sitt hvoru megin við áramótin.
Leikarnir fóru fram f svallstað menntskæl-
inga, þ.e. f Laugardalshöllinni. Töpuðu
okkar menn báðum leikjunum, markahlutfall
ókunnugt.
í körfuknattleik var leikið við Hagaskóla og
áttu okkar menn í engum vandræðum með
þá plebba. Að sögn Jónasar nokkurs
Ketilssonar fór leikurinn 100 stig okkar
gegn aðeins 20 stigum Hagaskólapilta.
Elías fræddi mig á þvf að sundséní skólans
hefðu tekið þátt f sundkeppni skólanna í
haust. Piltar sýndu mikinn baráttuvilja og
lentu í þriðja til fjórða sæti fyrir vikið.
Stúlkurnar gerðu nokkuð betur og kræktu
sér f þriðja sætið sem þær höfðu útaf
fyrir sig.
Úrvalslið úr menntadeildinni sigraði mennta-
deildina f Kópavogi í blaki, glæsilega og
einnig f körfuknattleik. Þegar hér var
komið sögu vorum við tveir farnir að ótt-
ast mjög að einhver þvottakona færi að
skipta sér af okkar prívat rabbi svo við
slitum tali okkar f hvelli, en sem kunnugt
er, virðast blessaðar þvottakonurnar ráða
öllu í skólanum og virðast vera á góðri leið
með að taka skólastjórnina f sfnar hendur.
Undirritaður kvaddi nú Elías Guðmundsson,
formann fþróttanefndar, með virktum og
bað hann lengi og vel að lifa, hvarf hann
þvf í stofu sína þar sem tekið var á móti
honum með miklum fögnuði viðstaddra. En
undirritaður hvarf á mót dönskum kokhljóð-
um í stofu 14, ojbara danska.
Undirritaður; íþróttasérfræðingur allt-
mögulegtmaður og vara-vara-vararit-
stjóri Blysins.
Sigurður Sigurðsson.