Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.02.1973, Side 32
Brjáni til ólýsanlegrar undrunar og skelf-
ingar, virtist hljóðið í hlj óðfærunum
sffellt hækka og hækka. Brátt var orð-
inn svo mikill hávaði, að ekki var hægt
að greina neitt hljóðfæri frá öðru, heldur
varð úr einn samfelldur kliður. Brjánn
hætti að syngja, greip báðum höndum um
eyrun, sem hann var farið að verkja
merkilega mikið f og æpti af öllum sálar
og lífs kröftum. Hann féll á kné og æpti
á hljómlistarmeðlimina og grátbað þá um
að hætta. Hann leit á celloleikarann.
Andlit hans var alsett vélmannalegu,
kjánalegu brosi. Hann horfði brostnum
augum á nótnaborðið. Nú brustu hljóð-
himnur Brjáns. Hávaðinn virtist ætla £ÍS
rffa bygginguna f sundur. Sérhvert hljóð
endurkastaðist frá veggjunum. Fyrir
augu Brjáns bar allt, er borið hafði fyrir
hann á þessum síðustu tfmum; Köttur
Sumarliðason, Brjóstið Grímheiður, Rödd-
in án lfkama, Maðurinn miðaldra. Asgeir
og hinir þrír, Sú Gamla, Drífa, Lee
Harvey Oswald, Umbi Roy, Karfinn
Magnús, Nj. Nsrrssg, Celloleikarinn og
Guðmundur Garðar Guðmundsson.
"Guðmundur Garðar Guðmundsson ?" spyrðu
kannski. Já, það síðasta, sem Brjánn
sagði í þessu lífi var einmitt "Guðmund-
ur Garðar Guðmundsson."
Brjánn fannst látinn,vegna ofneyslu LSD,
viku eftir að hann týndist.
Ja... (illu er bezt af lokið) Brjánn er
nefnilega stuttklipptur. Þú spyrð ef til
vill, hvers vegna stelpurnar f skólanum
hlæja að honum ? Hann nær sér þá aftur
á strik með fullorðna fólkinu. Það gerir
minna til, þó að stelpurnar f skólanum
hlægi að honum. Hann var fríðleiks pilt-
ur, og það kom jafnvel fyrir, að stúlka
og stúlka sendi honum girndarauga. Öll-
um var vel við Brján. Hann var nefni-
lega símasendill. Brjánn var enginn venju-
legur sendisveinn, ne-hei, það var nú eitt-
hvað annað. Það var oft gaman að vera
sendisveinn. Brjánn var sendisveinn.
Reykjavfk f febrúar 1973.
Ritað á Gula hælinu undir viðeig-
andi áhrifum.
(R. A.G.H.U. V. A.)
Ath. Þessi saga skal lesin 10538 sinnum
við raímagnskertaljós úr keramik, ef nokk-
ur botn á að fást f hana.
Kveðja,
hinn stórkostlegi rithöfundur,
Kattarmatur,
Þessi saga er tileinkuð:
öla Fink, óla Lárusar, 17, Nosalta,
G.G.G., 3.L.5, Önnu símastúlku, Sigurði
Hauk, Jóni A, Brúðkaupi Gunnlaugs, Bergi,
Grfmheiði og veiklun Sverris B.
Kattarmatur
(Öðru nafni "AFI").