Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1939, Síða 39
21
Foreldri hins láína hlýtur minnst 500 kr. bætur og allt að 1500 kr.,
ef það hefir verið algerleg'a á framfæri hans. Þessu var breytt þannig
1937, en áður hlutu foreldrar því aðeins bætur, að þau hefðu verið á
framfæri hins slasaða.
Um fósturbörn og fósturforeldra gilda sömu reglur og um börn og
foreldra.
Loks má geta þess, að með lögunum 1937 var útgerðarmanni gert
skylt að tryggja gegn aukaiðgjaldi áhættu jrá vegna slysa, sem hann
ber samkv. 27. og 28. gr. sjómannalaganna, og' greiðir slysatryggingin
því, auk venjulegra slysabóta, sjómönnum þeim, sem í hlut eiga, fnllt
kaup eða hlut í eina viku frá afskráningardegi að telja.
e. Iðgjöldin og innheimta þeirra.
Til þess að standast útgjöld slysatryggingarinnar er atvinnurek-
endum gert að skyldu að greiða iðgjöld fyrir alla tryggingarskylda menn,
sem þeir hafa í þjónustu sinni. Er óheimilt að draga iðgjöldin frá
kaupinu. í þessu sambandi lelst aflahlutur kaup, og ber því útgerðar-
manni að greiða iðgjöld fyrir skipverja, sem ráðnir eru upp á hlut.
Vegna þess hve misjöfn slysahættan er og þar sem eðlilegast er að
hinar áhættusamari atvinnugreinar greiði hærri iðgjökl heldur en þær,
sem minni slysahætta fylgir, er hinuin tryggingarskyldu störfum og
starfsgreinum skipt í áhættuflokka, með misjafnlega háum iðgjöldum
fyrir hvern flokk. Alls eru áhættuflokkarnir 12. Eru iðgjöldin miðuð við
eina viku og er lægsta iðgjaldið 15 aurar á viku, en hið hæsta 25 kr.
á viku eða ca. 167 sinnum hærra. Sést á þessu hve gífurlega mikill
munur er áætlaður á slysahættunni í mismunandi starfsgreinum.
Eftirfarandi tafla sýnir vikuiðgjöldin:
Aui-ar á viku Aurar á viku
1. áhættuflokkur 15 7. áhættuflokkur ... 120
2. 25 8. ... 150
3. 40 9. . . . 200
4. 00 10. . . . 300
5. 80 11. ... 600
(i. ... 100 12. ... 2500
Tveir síðustu flokkarnir hafa frekar litla þýðingu. í 11. flokki er
aðeins frjáls trygging (sjá síðar) á björgunarstörfum við skipsströnd
og í 12. fl. aðeins bjargsig, þ. e. a. s. sjálfur sigmaðurinn, en aðstoðar-
menn hans eru í 10. fl. En iðgjöld 10. fl. eru þó 20 sinnum hærri lieldur
en í 1. fl., svo allmiklu inunar samt.
Sjómannatryggingin er i 7.—10. flokki, en í þeim eru auk þess
nokkur önnur áhættusöm störf, eins og t. d. námugröftur.
I 1. fl. eru ýmiskonar iðnstörf, eins og t. d. bókband, gullsmíðar,
súlun o. fk, í 2. fl. t. d. bréfberastörf, leðuriðja, prentiðn, sjóklæða-
gerð o. fl., í 3. fk l. d. belgjagerð, brauðgerð, fiskherzla, uiðursuða, vegg-