Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1939, Blaðsíða 62
44
Eftirmáli.
Síðan ófi’iðurinn hófst og verðlag allt fór hækUandi af völduni
hans, hafa verið gei'in i'd tvenn lög, sem breyta vnisuin ákvæðuin alþýðu-
t i*y g á|n g a r 1 a g a n n a.
Með löguni frá 7. inaí 1940 var ákveðið, að dagpeningar, örorku-
bætur og' dánarhætur til slysatryggðra manna eða skylduliðs þeirra sam-
kvæmt alþýðutryggingarlögunuin, skuli á árinu lí)40 hækka uin söniu
hundraðstölu og vísitala kauplagsnefndar hækkar uin.
Þá var og Lífeyrissjóði íslands með sömu löguin heimilað að
greiða á ái’inu 1940 uppbót á ellilaun og örorkubætur í II. flokki, er
næmi allt að sama hundraðshluta og vísitala kauplagsnefndar hækkar
um, enda g'reiði hlutaðeigandi sveitaríelag tilsvarandi ttppbót að sínum
hluta. Tryggingarstofnunin ákvað, að Lífeyrissjóður íslands skyldi nota
heimild þessa, og' greiddi um % hluti sveitarfélaganna verðlagsujipbót
á ellilaun og örorkubætur, þar á ineðal allir kaupstaðirnir. Ríkissjóður
endurgreiðir Lífeyrissjóði þá fjárhæð, sem hann leggur frain í þessu
skyni.
Með bráðabirg'ðalögum l'rá 27. ágúst 1940, um viðauka við fyrnefnd
lög, var ákveðið að fyrirmælin um hækkun slysabóta og uppbót á elli-
laun og örorkubætur skuli gilda meðan vísitalan er 110 eða hærri.
Jafnframt voru upphæðir þær, sem taldar eru eðlilegur framfærslueyi’ir
einstakllings samkvæmt lithlutunarreglum II. flokks, (sbr. bls. 34),
hækkaðar með reglum félagsmálaráðlierra dags. 9. sept. 1940 og' eru
þær sem hér segir: í Reykjavík kr. 1170, í öðrum kaupstöðum kr. 1100,
í kaupstöðum með 300 íbiia eða fleiri kr. 940 og annarsstaðar kr. 780.
Auk jxess var gerð sú þýðingarmikla breyting, að meðan vísitalan
er 110 eða hærri, skuli Lífeyrissjóður íslands g'reiða 30% af heildar-
upphæð ellilauna og örorkubóta í II. flokki.
Þetta þýðir í fyrsta lag'i nokkra hlutfallslega hækkun á framlagi
Lífeyrissjóðs frá því, sem verið hefir, í öðru lagi, að nú geta sveitar-
féiögin fyrir fram reiknað út, þegar þau ákveða lithlutunina, hve mikinn
hluta hennar Lífeyrissjóður muni g'reiða, og er það vitanlega mikils
virði fyrir þau. Loks er með þessu tryggt, að lífeyrissjóðurinn tekur
jafnan fullan þátt í hækkunum vegna dýrtíðarinnar, auk jxess, sem
lnindraðshluti sjóðsins hækkar.
Ríkissjóður endurgreiðir Lifeyrissjóði íslands þann hluta af fram-
lagi hans, sem er umfram það, sem ákveðið var i alþýðutryggingar-
lögunum, áður en breytingin var gerð (sbr. bls. 33).
Að Iokum má nefna lög um stríðsslysatryggingu sjómanna, cnda
þótt þau komi ekki beinlínis alþýðutryggingunum við.