Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1939, Blaðsíða 46
28
lagssvæðis, enda sæki sanilagsmaður um það fyrirfram lil samlagsins
og fái til þess meðmæli trúnaðarlæknis eða samlagslæknis.
Ef samlagsmaður er á ferðalagi utan samlagssvæðis eða dvelur þar
skemur en 1 mánuð og þarf á sjúkrahjálp að halda, er samlagi hans
skylt að greiða hana, en þó eigi hærri upphæð, en ef hann hefði notið
sjúkrahjálparinnar á samlagssvæðinu.
Dvelji samlagsmaður hins vegar lengur en 1 mánuð á samlagssvæði
annars samlags, og þarfnist sjúkrahjálpar, er svo lil a'tlazt, að hann
verði bráðabirgðameðlimur í sjúkrasamlagi dvalarstaðarins. Afhendir
það honum meðlimsskírteini lil bráðabirgða og' veitir það rétt lil allrar
sjúltrahjálpar, eftir reglum þess samlags, að dagpeningatryggingu
undantekinni. Samlag', senr veitir slik bráðabirgðaréttindi, á endurkröfu-
rétt á hendur því samlagi, sem hlutaðeigandi er meðlimur í, á þeim
kostnaði, sem það hefir haft hans vegna.
Eins og áður er getið, skal leita staðfestingar Tryggingarstofnunar-
innar á samningum þeiin, sem sjúkrasamlögin gera, um greiðslur fyrir
sjúkrahjálp. Fari svo að samkomulag náist ekki við lækna, sjúkrahús
eða aðra; er sjúkrasamlaginu heimilt að greiða slíka sjúkrahjálp eftir
reg'lum, sem Tryggingarstofnunin setur, jafnvel þótt slik greiðsla sé
ekki nægileg til þess að uppfylla þau lágmarkshlunnindi, sem um getur
að framan. Er þetla hin eina undantekning, sem heimilar að skerða
þessi láginarkshlunnindi.
e. Flutningar.
Áður er uin það getið, þegar samlagsmaður dvelur um stundar-
sakir utan samlagssvæðis sins og þarf á sjúkrahjálp að halda. Heldur
hann áfram að vera meðlimur í þvi samlagi, þar sem hann er búsettur
og verður að standa í skilum með iðgjald silt.
Flytji hann hinsvegar búferlum út af samlagssvæðinu, hættir hann
að vera meðlimur þess samlags, sem hann hefir verið í. Flytji hann á
annað samlagssvæði, verður hann þegar tryggingarskyldur þar og öðlast
full réttindi án biðtíma, hafi hann lokið að greiða biðtímag'jöld þar
sem hann var áður. Hafi hann greitt nokkuð af biðtímanum, greiðir
hann aðeins það, sem á vantar lil samlagsins, sem hann flytur til.
Tryggingarstofnun ríkisins gefur út sérstakar flutningareglur og
flutning'svottorð, sem hver samlagsmaður verður að fá hjá samlagi
sínu, er hann flytur búferlum á annað samlagssvæði. Vottorðið er því
aðeins gefið, að hann sé skuldlaus við samlag silt, ]). e. hafi greitt iðgjald
fyrir þann mánuð, er hann flytur í. \rottorðið veitir þau réttindi að geta
gengið í samlagið á þeim slað, er hann flytur til, án biðtíma og án
læknisskoðunar. Þess má geta, að gerðir hafa verið samningar við Dan-
mörk um flutninga á milli samlaga á Islandi og í Danmörku, og eru
þeir að mestu leyti hliðstæðir reglum þeim, sem nú hefir verið greint frá.