Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1939, Blaðsíða 59
41
c. Iðgjuldin, tillög rikissjóðs og sveitarfélaga.
Iðgjöldin eða árstillögin skal ákveða í samþykkt hvers sjóðs og
hvernig þau greiðast. Áður er minnzt á biðtímagjöld þau, er svara til
biðtímaiðgjalda sjúkrasamlaganna og ætlazt er til að myndi undir-
stöðuna að varasjóði.
Reglurnar um framlög hins opinbera eru mismunandi eftir því,
hvort um er að ræða sjóði ófaglærðra daglaunamanna og sjómanna
eða annara.
Til hinna fyrrnefndu greiða ríkissjóður og hlutaðeigandi sveitar-
sjóður hvor um sig, framlög er nema 50 af hundraði af greiddum
iðgjöldum sjóðfélag'a, þó ekki yfir (5 krónur frá hvorum aðila á ári fyrir
hvern tryggðan mann og ekki yfir 75000 kr. á ári úr ríkissjóði, nema
heiinikl komi lil í fjárlögum.
Til annara atvinnuleysissjóða miðast framlögin ekki við iðgjöldin,
heldur við þann atvinnuleysisstyrk, er sjóðirnir hafa lithlutað af fram-
lögum sjóðfélaga, eftir þessum reglum:
Ef meðalvinnutekjur í starfsgrein sjóðfélaga nema árlega minnu
en 3 000 krónum, greiðast 25% af greiddum atvinnuleysisstyrk frá
hvorum aðila, ríkissjóði og hlutaðeigandi sveitarsjóði. Ef tekjurnar eru
yfir 3 000 kr. en undir 4 000 kr., greiðast 20%. Ef tekjurnar eru yfir
4 000 kr. en undir 5 000 kr„ greiðast 15%. Séu tekjurnar hærri greiðist
enginn styrkur.
F, Sjóðir undir stjórn og' eftirliti
Tryggingarstofnunar ríkisins.
Með alþvðutryggingarlögunum frá 1. febr. 1936, eru lífeyrissjóðir
embættismanna og barnakennara lagðir undir stjórn Tryggingarstofn-
unar ríkisins. Um skipulag þessara sjóða og starfsemi hefir verið rætt
hér að framan, hls. 8—10, svo ekki er ástæða til að g'era grein fyrir öðru
á þessum stað, en þeim breytingum á löggjöf varðandi þá, sein gerðar
voru með alþýðutryggingarlögunum 1936 og síðar.
Ennfremur eru eftirlaunasjóðir starfsmanna Landsbanka íslands
og Útvegsbanka íslands viðurkenndir með breytingu á alþýðutrygg-
ingarlögunum frá 31. des. 1937, en þeir eru óháðir Tryggingarstofnun-
inni að öðru leyti en þvi, að þeir bera ábyrgð á greiðslu lifeyrissjóðs-
g'jalda þeirra sjóðfélaga, sem missa réttindi sín i þeim, og þar af leið-
andi verða gjaldskyldir til Lífeyrissjóðs íslands.
a. Eftirlaunasjóðir viðurkenndir af Trgggingarstofnun rikisins.
í lög'unum frá 1937 cr gert ráð fyrir því, að stofnanir, félög eða fyrir-
tæki geti stofnað eftirlaunasjóði fyrir starfsfólk sitt eða meðlimi, og
fengið þau hlunnindi, að Tryggingarstofnunin endurgreiði þann hluta af
fi